Tottenham kynnti í dag nýjan styrktaraðila hjá félaginu til leiks. Málningarfyrirtækið Dulux, er nýr styrktaraðili en samstarfið fór ekki alveg nógu vel af stað.
Stólpagrín hefur verið gert af titlaleysi Tottenham á samfélagsmiðlum eftir að starfsmaður sem hefur aðgang að Twitter-reikningi Dulux, tók að hæðast að titlaleysi félagsins.
David Edwards, stuðningsmaður Tottenham spurði fyrirtækið á Twitter eftir að samstarfið var tilkynnt, hvort að ekki væri hægt að geyma málningarfötur í bikaraskáp Tottenham.
„Þú veist þetta David,“ var svar Dulux á Twitter og með svarinu birtist mynd af tómum bikaraskáp.
Annar notandi Twitter, stakk upp á því að fyrirtækið gæti málað bikaraskápinn.
„Ekki vera kjáni, yfirborðsfletir ættu að vera lausir við allt ryk áður en maður fer að mála,“ var svar Dulux.