Þýski markvörðurinn Bernd Leno, aðalmarkvörður Arsenal hefur ekki hafið viðræður við félagið um nýjan samning en núverandi samningur hans við félagið rennur út árið 2023.
Rúnar Alex Rúnarsson, landsliðsmarkvörður Íslands er þriðji markvörður Arsenal um þessar mundir og liðsfélagi Leno sem var á dögunum spurður að því í viðtali hverjar framíðaráætlanir hans væru.
„Á þessari stundu er ekki rétti tímapunkturinn til þess að tala um framtíðina. Ég á enn tvö ár eftir af mínum samningi og ég er bara 29 ára gamall, sem er ekki mikið fyrir markvörð,“ sagði Leno.
Honum líður vel hjá Arsenal en lokar ekki á neitt.
„Ég veit ekki hvað framtíðin ber í skauti sér. Ég er opinn fyrir öllu, nýju ævintýri eða að vera áfram hjá Arsenal,“ sagði Bernd Leno, aðalmarkvörður Arsenal.