Zlatan Ibrahimovich braut reglur FIFA þegar hann snéri aftur í sænska landsliðið, ástæðan er sú að Zlatan er hluthafi í veðmálafyrirtækinu Bethard.
Ef Zlatan verður fundinn sekur hjá FIFA gæti hann fengið væna sekt og mögulegt bann frá öllum keppnum FIFA og UEFA um nokkurt skeið.
Zlatan snéri aftur í sænska landsliðið í síðasta mánuði en hann hafði ekki leikið fyrir Svíþjóð í sex ár, hann vill taka þátt í Evrópumótinu í sumar. Zlatan verður fertugur á þessu ári.
„Við höfum ekki rætt málið við Zlatan,“ sagði Håkan Sjöstrand hjá sænska knattspyrnusambandinu.
Samkvæmt reglum FIFA má sá sem tekur þátt í keppnum hjá knattspyrnusambandinu ekki hafa neinn fjárhagslegan ávinning í gegnum veðmálafyrirtæki.
Bethard hefur staðfest að Zlatan eigi hlut í fyrirtækinu en hann hefur verið andlit veðbankans eftir að hann gerðist hluthafi.