Liðsmynd af spænska knattspyrnuliðinu Barcelona sem birtist á netinu í dag hefur vakið mikla athygli en netverjar keppast við að rýna í myndina.
Það virðist vera sem leikmanni liðsins, Philipe Coutinho, hafi verið bætt við myndina með Photoshop-myndvinnsluforritinu.
Hinn 28 ára gamli sóknarmaður hefur aðeins leikið 14 leiki með Barcelona á tímabilinu sökum meiðsla og einn netverji spyr þeirrar spurningar hvort Coutinho sé yfir höfuð enn þá á Spáni sökum þess að honum var bætt við myndina.
Þá vekur handastaða varnarmannsins Gerard Pique, einnig athygli en spænska götublaðið Marca, telur að leikmaðurinn gæti verið að senda fyrrverandi leikmanni liðsins, Neymar, sem er nú leikmaður PSG, skilaboð um að snúa aftur til Katalóníu.
Handstaða Pique er sú sama og handstaða Neymar á liðsmynd með Barcelona tímabiið 2014/2015.
They photoshopped Coutinho 😭😭😭😭 https://t.co/sWzIKAMpaT
— Rohit 😴 (@ffsjackkk) April 13, 2021
This is the dream Coutinho backstabbed us for btw😭 pic.twitter.com/KjpODJJ9KU
— FantasticFirmino9 (@MPBFirmino9) April 13, 2021