Sheffield United tók á móti Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Leiknum lauk með 3-0 sigri Arsenal en leikið var á Bramall Lane í Sheffield.
Fyrsta mark leiksins kom á 33. mínútu, markið skoraði Alexandre Lacazette eftir stoðsendingu frá Dani Ceballos.
Þannig stóðu leikar allt þar til á 72. mínútu þegar að Gabriel Martinelli bætti við öðru marki Arsenal.
Það var síðan Alexandre Lacazette sem innsiglaði 3-0 sigur Arsenal með marki á 86. mínútu eftir stoðsendingu frá Thomas Partey.
Fleiri mörk voru ekki skoruð í leiknum, skytturnar í Arsenal sitja í 9. sæti með 45 stig en Sheffield United situr í 20. sæti með 14 stig.