Fjölmiðlar í Bretlandi virðast sammála um það að Harry Kane, stjarna Tottenham, muni reyna að komast frá félaginu ef því mistekst að landa Meistaradeildarsæti á þessu tímabili. Það er ljóst að stærstu lið Evrópu verða á eftir honum ef hann ákveður að fara.
The Athletic greindi fyrst miðla frá því að Kane væri að íhuga framtíð sína. Í kjölfarið tóku margir af helstu miðlum Bretlands undir. Talið er að leikmaðurinn hafi áhyggjur af getuleysi Tottenham til að berjast um titla.
Kane er þó samningsbundinn Spurs til 2024. Það setur Spurs í sterka stöðu, bæði ef þeir vilja halda honum eða þá selja dýrt.
Hann hefur áður sagt að hann elski Spurs en að hann sé einnig virkilega metnaðarfullur. Kane hefur þó hvorki getað svarað játandi né neitandi er hann hefur verið spurður út í það hvort hann fari einn daginn frá félaginu.
Af enskum liðum hefur Kane mest verið orðaður við Manchester-liðin, City og United. Þá hafa Real Madrid, PSG ásamt fleiri evrópskum stórliðum verið nefnd til sögunnar.
Það er þó ekki talið líklegt að Kane muni ákveða sig endanlega fyrr en eftir Evrópumót landsliða í sumar.