Frank Lampard, fyrrum knattspyrnustjóri Chelsea, segist hafa hafnað heillandi tilboðum frá knattspyrnufélögum eftir að honum var sagt upp störfum hjá Chelsea.
Lampard entist aðeins í rúma 18 mánuði á Stamford Bridge og hann var rekinn í janúar á þessu ári.
„Það hafa komið tilboð á síðustu sex vikum eða svo. Tilboð sem hafa verið heillandi en bara ekki það sem ég er að leitast eftir á þessari stundu,“ sagði Lampard í viðtali á dögunum.
Hann er þakklátur fyrir það tækifæri sem hann fékk hjá Chelsea en gerir sér grein fyrir því að ótímabær bröttför sé hluti af knattspyrnustjóra starfinu.
„Enginn vill missa vinnuna sína og þurfa stíga út úr leiknum sem maður elskar. Á sama tíma veit maður að slíkt getur gerst þegar að maður starfar í þessum heimi, sama hversu vel þeir gengur.“
„Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til þess að stýra Chelsea,“ sagði Frank Lampard, fyrrum knattspyrnustjóri Chelsea.