Enska knattspyrnusambandið mun sleppa Jarrod Bowen, leikmanni West Ham, með væga refsingu í kjölfar þess að færsla hans á Twitter frá árinu 2012 var tekin fyrir í lok síðasta mánaðar. Tístið innihélt N-orðið en Bowen er sleppt með viðvörun sökum þess hversu ungur hann var þegar hann birti það. The Sun greinir frá.
Aganefnd knattspyrnusambandsins var bent á tístið í síðasta mánuði og hafði í kjölfarið samband við Bowen. Honum hefur nú verið tjáð að hann muni sleppa með viðvörun þar sem hann var aðeins 15 ára gamall þegar hann birti færsluna. Ásamt því að hafa fengið viðvörun þarf leikmaðurinn að fara á fræðslunámskeið á vegum knattspyrnusambandsins.
,,Mig langar að biðjast afsökunar fyrir óásættanlegt innihald tístsins, sérstaklega alla þá sem tengjast West Ham,“ sagði Bowen eftir að málið var grafið upp í síðasta mánuði. Hann bætti við að tístið endurspeglaði ekki gildi hans og skoðanir.
Bowen hefur skorað 7 mörk fyrir West Ham í 30 leikjum í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Lið hans tekur á móti Leicester á morgun í mikilvægum leik í Meistaradeildarbaráttunni.