Liverpool þarf á þremur stigum að halda gegn Aston Villa á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni á morgun, Liverpool er komið í dauðafæri á að ná Meistaradeildarsæti.
Liverpool er þremur stigum frá Meistaradeildarsætinu en má ekki misstíga sig mikið nú þegar átta leikir eru eftir.
Guardian spáir því að Diogo Jota og Naby Keita missi sæti sitt í byrjunarliðinu frá tapinu gegn Real Madrid á þriðjudag.
Aston Villa vann fyrir leik liðanna 7-2 en Jack Grealish, besti leikmaður liðsins er áfram frá vegna meiðsla.
Líkleg byrjunarlið eru hér að neðan að mati Guardian.