Antoine Griezmann leikmaður Barcelona og franska landsliðsins hefur eignast sitt þriðja barn. Dóttir hans Alba kom í heiminn í gær, þann 8 apríl.
Dagsetning er ansi mögnuð en fyrir áttu Griezmann og eiginkona hans EriKA Choperena tvö önnur börn. Mia sem er fimm ára og Amaro sem er tveggja ára eiga sama afmælisdag og Alba.
Öll þrjú börn þeirra hafa því fæðst á sama degi sem er ansi merkileg staðreynd.
Griezmann missti eðlilega af æfingu Barcelona í gær en liðið mætir Real Madrid í stórleiknum á Spáni á morgun, liðin eru að berjast um sigur í deildini og leikurinn ansi mikilvægur.
Griezmann hefur ekki náð að slá í gegn á sínu fyrstu tveimur tímabilum hjá Barcelona en hann kom til félagsins frá Atletico Madrid.