fbpx
Föstudagur 19.júlí 2024
Pressan

Mikil aukning dauðsfalla af völdum COVID-19 í Bandaríkjunum

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 9. apríl 2021 05:23

Stökkbreytt kórónuveira. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eftir frekar jákvæða þróun hvað varðar ný smit af völdum kórónuveirunnar og fækkun dauðsfalla í Bandaríkjunum undanfarnar vikur hefur þróunin snúist við og veldur það ákveðnum áhyggjum.

Á miðvikudaginn tilkynntu yfirvöld að 2.564 hefðu látist af völdum COVID-19 síðasta sólarhringinn en meðaltal síðustu sjö daga á undan var 992 dauðsföll. Þetta kemur fram í tölum frá Johns Hopkins háskólanum.

Þetta eru flest andlát á einum sólarhring síðan 19. febrúar.

Hvað varðar smit þá voru 73.200 ný smit staðfest á miðvikudaginn en meðaltal síðustu sjö daga á undan var 65.556 smit á sólarhring.

Sjúkrahúsinnlögnum hefur einnig fjölgað aðeins og voru um 5.000 á sólarhring síðustu sjö daga og er það um 2,7% aukning miðað við vikuna þar á undan.

En góðu tíðindin eru að það er bólusett af miklum móð. Að meðaltali eru þrjár milljónir skammta af bóluefnum gefnar á dag núna og er það 8% aukning frá síðustu viku. Nú hafa um 110 milljónir Bandaríkjamanna fengið að minnsta kosti einn skammt af bóluefni.

Rochelle Walensky, forstjóri bandarísku smitsjúkdómastofnunarinnar, segir þetta gleðileg tíðindi en hefur um leið áhyggjur af aukningu smita og innlagna á sjúkrahús. „Um allt land heyrum við um smit sem tengjast leikskólum og íþróttaiðkun ungmenna. Sjúkrahúsin taka á móti sífellt fleira fólki á fertugs og fimmtugsaldri sem er alvarlega veikt,“ sagði hún og hvatti fólk til að forðast íþróttaiðkun innanhúss og þátttöku í fjölmennum samkomum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 4 dögum

600 ára gamall texti líkist vel þekktum texta frá síðari tímum

600 ára gamall texti líkist vel þekktum texta frá síðari tímum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Er leitinni að Plánetu níu að ljúka?

Er leitinni að Plánetu níu að ljúka?
Pressan
Fyrir 5 dögum

Það er farið að hægja á snúningi innri kjarna jarðarinnar – Það gæti breytt daglengdinni

Það er farið að hægja á snúningi innri kjarna jarðarinnar – Það gæti breytt daglengdinni
Pressan
Fyrir 5 dögum

Er sársaukaþröskuldur kvenna hærri en karla?

Er sársaukaþröskuldur kvenna hærri en karla?
Pressan
Fyrir 1 viku

Páfagarður bannfærir erkibiskup sem sagði Frans páfa vera „þjón djöfulsins“

Páfagarður bannfærir erkibiskup sem sagði Frans páfa vera „þjón djöfulsins“
Pressan
Fyrir 1 viku

Færð þú frið í sumarfríinu? Fyrirtæki hafa samband við þriðja hvern starfsmann í sumarfríinu

Færð þú frið í sumarfríinu? Fyrirtæki hafa samband við þriðja hvern starfsmann í sumarfríinu
Pressan
Fyrir 1 viku

Hyggjast verðlauna aðflutta með milljónum

Hyggjast verðlauna aðflutta með milljónum
Pressan
Fyrir 1 viku

Ítalskur bær neyðist til að vísa ferðamönnum á brott vegna vatnsskorts

Ítalskur bær neyðist til að vísa ferðamönnum á brott vegna vatnsskorts