fbpx
Laugardagur 01.febrúar 2025
433Sport

Meiri líkur en minni að tekið verði upp nýtt keppnisfyrirkomulag – „Gæti aukið verðgildi okkar sjónvarpssamninga“

Aron Guðmundsson
Föstudaginn 2. apríl 2021 07:00

©Anton Brink 2020

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Birgir Jóhannsson, framkvæmdastjóri Íslensk Toppfótbolta telur að meiri líkur en minni séu á því að keppnisfyrirkomulag í efstu deild karla verði breytt.

Ef svo yrði myndi leikjum í Pepsi-Max deild karla fjölga. Deildin yrði þó ennþá 12 liða þar sem spiluð yrði tvöföld umferð en henni yrði síðan skipt í tvo hluta þar sem efstu 6 liðin myndu keppa innbyrðis og neðstu sex liðin myndu keppa innbyrðis.

„Ég tel meiri líkur en minni að við séum að fara horfa á nýtt kepnisfyrirkomulag og að það taki gildi árið 2022. Það kom út yfirlýsing frá félögum í efstu deild í síðustu viku, þar sem að þau eru öll sammála því að fara þá leið,“ sagði Birgir í sjónvarpsþættinum 433.is í vikunni.

Hann telur að þetta fyrirkomulag gæti aukið verðmætasköpun deildarinnar. Öll félögin í Pepsi-Max deild karla sendu frá sér yfirlýsingu þar sem þau styðja þetta fyrirkomulag og þá bættust einnig við níu lið í Lengjudeild karla í gær sem segjast styðja þessa leið.

„Við vorum búnir að skoða þetta fram og til baka í samráði við okkar sérfræðinga og við teljum að þetta fyrirkomulag með þessari úrslitakeppni gæti aukið verðgildi okkar sjónvarpssamninga. Við töldum þetta auka líkurnar á því að styrkja mótið og fá hærri greiðslur fyrir sjónvarpsréttinn.“

Birgir Jóhannsson, framkvæmdastjóri Íslensk Toppfótbolta

Nú er verið að leita að rétthafa fyrir efstu deildir knattspyrnunnar á Íslandi.

„Við gefum okkur þrjár vikur til þess að gefa aðilum sem hafa áhuga svigrúm, mynda sér skoðun á þessu og við munum taka við tlboðum til 16. apríl. Ferlið sjálft mun hins vegar taka í kringum 2-3 mánuði. Það er margt nýtt í þessu og þetta er stórt og mikið ferli.“

Ljóst er að það eru ekki aðeins innlendir aðilar sem hafa áhuga á því að eiga réttinn á deildunum hér heima.

„Jú það er mikill áhugi. Við erum líka að reyna að fara nýja leið. Fara nær þessari stafrænnu tækni sem er við lýði í dag. Það má kannski segja að við séum svolítið að leggja spilin í hendurnar á þeim aðilum sem bjóða í réttinn að koma fram með sínar tillögur og hugmyndir,“ sagði Birgir Jóhannsson, framkvæmdastjóri Íslensk Toppfótbolta.

Viðtalið við Birgi og þáttinn í heild sinni má sjá hér fyrir neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Senda inn fyrirspurn vegna Garnacho

Senda inn fyrirspurn vegna Garnacho
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Morata að taka áhugavert skref

Morata að taka áhugavert skref
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Sigurður ómyrkur í máli um stöðuna í Hafnarfirði – „Það böggar mig bara ógeðslega mikið“

Sigurður ómyrkur í máli um stöðuna í Hafnarfirði – „Það böggar mig bara ógeðslega mikið“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Vandræði innan herbúða Liverpool – Virkilega ósáttur með að hafa ekki fengið að ræða við annað félag

Vandræði innan herbúða Liverpool – Virkilega ósáttur með að hafa ekki fengið að ræða við annað félag
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Van der Sar sendir skilaboð til Amorim: ,,Mun bæta sig á næstu fimm eða sex árum“

Van der Sar sendir skilaboð til Amorim: ,,Mun bæta sig á næstu fimm eða sex árum“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Amorim útskýrir bekkjarsetu Garnacho

Amorim útskýrir bekkjarsetu Garnacho
433Sport
Í gær

Svona eru áherslur dómara fyrir komandi leiktíð

Svona eru áherslur dómara fyrir komandi leiktíð
433Sport
Í gær

Högg fyrir Arsenal og City

Högg fyrir Arsenal og City