fbpx
Sunnudagur 02.febrúar 2025
433Sport

„Gamla bandið var endanlega borið til grafar í dag“

Aron Guðmundsson
Sunnudaginn 28. mars 2021 20:21

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenska karlalandsliðið tapaði í dag 2-0 fyrir Armeníu á útivelli í undankeppni HM. Íslands er án stiga eftir fyrstu tvær umferðir undankeppninnar og á leik gegn Liechtenstein á miðvikudaginn.

„Gamla bandið var endanlega borið til grafar í dag,“ sagði Hjörvar Hafliðason, umsjónarmaður hlaðvarpsþáttarins Dr.Football í upphafi þáttar í dag.

Kristján Óli Sigurðssson, einn af gestum þáttarins, var ekki hrifinn af leik íslenska liðsins.

„Þetta er ekki boðlegt. Hvert var leikskipulagið? Hvernig á besta lið Íslands að líta út þegar að það vantar leikstjórann. Þetta var skelfilegt, við áttum varla færi í leiknum.“

„Við vorum að spila á móti Armeníu, sem er, með fullri virðingu fyrir þeim, léleg fótboltaþjóð. Þetta var úrslitastund fyrir okkur til að reyna vera í baráttu um sæti á HM í þessum riðli,“ sagði Kristján Óli í Dr. Football.

Hann var þá spurður út í það hvort möguleikar Íslands um að komast á HM væru úti.

„Menn geta farið til Katar á næsta ári en íslenska landsliði fer bara þangað sem ferðamenn, aldrei sem leikmenn,“ var svar Kristjáns Óla.

„Nú er bara í lagi að segja hlutina eins og þeir eru“

„Við erum með þessa einstöku kynslóð sem við höfum margoft þakkað fyrir. Nú er bara allt í lagi að segja hlutina eins og þeir eru.“

„Við erum með mjög fullorðið lið. Þetta eru sömu bakverðir og voru fyrir 10 árum síðan,“ sagði Hjörvar og þuldi upp nöfnin á nokkrum þeim sem hafa skipað byrjunarlið Íslands undanfarin ár og nefndi síðan þá leikmenn sem yngri eru og verma varamannabekk liðsins.

„Erum við að velja besta liðið okkar eða erum við að treysta á að þessir leikmenn sem eru búnir að koma okkur langt, geri það enn eina ferðina?“ sagði Hjörvar Hafliðason, umsjónarmaður Dr. Football.

Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni hér fyrir neðan.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Hefði orðið dýrastur og launahæstur í heimi

Hefði orðið dýrastur og launahæstur í heimi
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

England: Salah með tvennu gegn Bournemouth – Moyes óstöðvandi

England: Salah með tvennu gegn Bournemouth – Moyes óstöðvandi
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Senda inn fyrirspurn vegna Garnacho

Senda inn fyrirspurn vegna Garnacho
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Eru að landa Marcus Rashford

Eru að landa Marcus Rashford
433Sport
Í gær

Henderson verður áfram í Hollandi

Henderson verður áfram í Hollandi
433Sport
Í gær

Van der Sar sendir skilaboð til Amorim: ,,Mun bæta sig á næstu fimm eða sex árum“

Van der Sar sendir skilaboð til Amorim: ,,Mun bæta sig á næstu fimm eða sex árum“
433Sport
Í gær

U17 ára landsliðið mætir Kára

U17 ára landsliðið mætir Kára
433Sport
Í gær

Sá stjörnu United æfa eina á æfingasvæðinu – ,,Hugsaði með mér hversu vandræðalegt þetta væri“

Sá stjörnu United æfa eina á æfingasvæðinu – ,,Hugsaði með mér hversu vandræðalegt þetta væri“