fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Fréttir

Mætti smitaður í World Class – „Smitin eru að teygja sig inn í æfingar og í­þrótta­iðkun“

Máni Snær Þorláksson
Fimmtudaginn 25. mars 2021 13:23

Frá World Class Laugum

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Smitaður einstaklingur fór á æfingu í World Class Laugum á laugardaginn. Fréttablaðið greinir frá en Jóhann Björn Skúlason, yfirmaður smitrakningarteymis almannavarna, staðfesti þetta í samtali við Fréttablaðið.

Vegna smitsins hefur mikill fjöldi fólks verið sendur í sóttkví, Jóhann segir að á þriðja tug fólks sé í sóttkví vegna smitsins. „Smitin eru að teygja sig inn í æfingar og í­þrótta­iðkun og það gerist rosa­lega hratt. Það hafa ekki margir verið að koma smitaðir úr líkams­ræktar­stöðvunum núna í raun bara ekkert,“ segir hann. „Smit berast á milli manna sama hvað hann heitir, þó að menn séu að gera allt rétt þá er þetta tals­vert mikil á­hætta alls staðar.“

Það er þó ljóst að fleiri munu ekki smitast þessa dagana við æfingar í World Class eða öðrum líkamsræktarstöðvum þar sem þeim hefur öllum verið lokað vegna hertra aðgerða og 10 manna samkomubanns sem tók gildi á miðnætti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Flugstjórinn sá eini sem komst lífs af

Flugstjórinn sá eini sem komst lífs af
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Baráttumaðurinn Unnar Karl Halldórsson fallinn frá

Baráttumaðurinn Unnar Karl Halldórsson fallinn frá
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fjölskyldufaðir ósáttur við að vera kallaður flugdólgur

Fjölskyldufaðir ósáttur við að vera kallaður flugdólgur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gleðifréttir fyrir líffæraþega – Sjúkratryggingar Íslands munu greiða allan kostnað við bólusetningar

Gleðifréttir fyrir líffæraþega – Sjúkratryggingar Íslands munu greiða allan kostnað við bólusetningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stefán Einar hraunar yfir kennaraforystuna – „Er metnaðarleysið algjört á þessum stöðum?“

Stefán Einar hraunar yfir kennaraforystuna – „Er metnaðarleysið algjört á þessum stöðum?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kvennaathvarfið nýtir gervigreind í nýrri vitundarvakningarherferð

Kvennaathvarfið nýtir gervigreind í nýrri vitundarvakningarherferð