fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Pressan

Kauptækifæri fyrir þá heimsendahræddu – Neðanjarðarbyrgi með fjórum íbúðum til sölu

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 25. mars 2021 06:50

Það lætur ekki mikið yfir sér. Mynd:realtor.com

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrir þá sem óttast heimsendi þá er nú gullið kauptækifæri því í Paradise Valley í Montana, nærri Yellowstone þjóðgarðinum, er  neðanjarðarbyrgi með fjórum íbúðum til sölu. Hugsanlega er þetta einnig áhugavert kauptækifæri fyrir þá sem vilja búa á óvenjulegum stað í óvenjulegu húsnæði.

Það er fasteignasalan Realtor.com sem er með byrgið til sölu og er það falt fyrir sem svarar til um 219 milljóna íslenskra króna. Eignin er ný og er sögð vel úr garði gerð og geti veitt fólki mikla vernd og öryggi.

Frábært útsýni er frá byrginu, svona ef íbúarnir þora út því það eru auðvitað engir gluggar á því. Það var upphaflega byggt sem byrgi til að vernda fólk gegn geislavirkri úrkomu. Nú eru fjórar íbúðir í því. Hver og ein með svefnherbergjum, baðherbergi, eldhúsi og stofu. Í einni íbúðinni er tómstundaherbergi með leiktækjum fyrir íþróttaáhugafólk.

Aðalinngangurinn. Mynd:realtor.com
Það er eldhús í öllum íbúðunum. Mynd:realtor.com

Ef að heimsendir eða aðrar hamfarir eru yfirvofandi er hægt að loka sig af frá umheiminum í byrginu. Hver íbúð er með kjallara þar sem er hægt að geyma nauðsynjar á borð við mat, drykk, lyf og auðvitað skotvopn fyrst um Bandaríkin er að ræða.

Svefnherbergi eru í ágætri stærð. Mynd:realtor.com
Baðherbergið lítur ágætlega út. Mynd:realtor.com

Byrgið getur haldið 10-12 gráðu hita en það er hitakerfi í því til að hægt sé að hafa hærri hita en það. Að auki er loftræstingarkerfi í því þannig að það ætti ekki að væsa um fólk.

Hér er hægt að geyma birgðir. Mynd:realtor.com

Fyrir þá sem vilja ekki loka sig algjörlega inni þá er Paradise Valley sagt vera draumaland útivistarfólks, hjólreiðar, útreiðar og stangaveiði er meðal þess sem svæðið hefur upp á að bjóða.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Það er farið að hægja á snúningi innri kjarna jarðarinnar – Það gæti breytt daglengdinni

Það er farið að hægja á snúningi innri kjarna jarðarinnar – Það gæti breytt daglengdinni
Pressan
Fyrir 3 dögum

Er sársaukaþröskuldur kvenna hærri en karla?

Er sársaukaþröskuldur kvenna hærri en karla?
Pressan
Fyrir 4 dögum

Skammbyssur sem Napóleon ætlaði að skjóta sig með seldust fyrir 255 milljónir

Skammbyssur sem Napóleon ætlaði að skjóta sig með seldust fyrir 255 milljónir
Pressan
Fyrir 4 dögum

Var á dauðaganginum í 45 ár – Vonast nú til að hreinsa nafn sitt

Var á dauðaganginum í 45 ár – Vonast nú til að hreinsa nafn sitt
Pressan
Fyrir 5 dögum

Hyggjast verðlauna aðflutta með milljónum

Hyggjast verðlauna aðflutta með milljónum
Pressan
Fyrir 5 dögum

Ítalskur bær neyðist til að vísa ferðamönnum á brott vegna vatnsskorts

Ítalskur bær neyðist til að vísa ferðamönnum á brott vegna vatnsskorts
Pressan
Fyrir 6 dögum

Banki þvingaði fólk til að kaupa óþarfa tryggingar, stofnaði yfirdátt í þeirra óþökk, færðu til peninga og sendu þeim óumbeðin greiðslukort

Banki þvingaði fólk til að kaupa óþarfa tryggingar, stofnaði yfirdátt í þeirra óþökk, færðu til peninga og sendu þeim óumbeðin greiðslukort
Pressan
Fyrir 6 dögum

Prestur barði eiginkonu sína fyrir að vera heppin

Prestur barði eiginkonu sína fyrir að vera heppin