fbpx
Sunnudagur 02.febrúar 2025
433Sport

Leiðin til Katar: Fyrsti leikur Íslands í undankeppni HM á morgun – Þetta er staðan á hópnum sem ríður á vaðið

Aron Guðmundsson
Miðvikudaginn 24. mars 2021 20:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu hefur leik í undankeppni HM á morgun þegar liðið leikur gegn Þýskalandi í Duisburg. Liðið mun síða leika gegn Armeníu þann 28. mars og Liechtenstein þann 31. mars.

Hér verður farið yfir stöðuna á þeim leikmönnum sem Arnar Þór Viðarsson valdi í þetta landsliðsverkefni. Upphaflega valdi Arnar 25 leikmenn í verkefnið en Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Everton og Björn Bergmann Sigurðarsson, leikmaður Molde, þurftu að draga sig úr hópnum.

Markverðir: 

Hannes Þór Halldórsson (Valur – 74 landsleikir) hefur verið að spila í Lengjubikarnum með Íslandsmeisturum Vals upp á síðkastið. Hannes stóð í rammanum hjá Val í leik gegn KR í 8-liða úrslitum keppninnar um síðustu helgi. Hannes hefur verið lykilmaður í íslenska landsliðinu undanfarin ár og verið í svipaðri stöðu áður, það er að segja að vera á undirbúningstímabili og valinn í landsliðið á sama tíma.

Hannes Þór Halldórsson hefur varið mark íslenska landsliðsins með prýði undanfarin ár

Ögmundur Kristinsson (Olympiacos – 17 landsleikir ) hefur þurft að sætta sig við bekkjarsetu hjá gríska félaginu. Hann hefur aðeins leikið þrjá leiki á tímabilinu og þeir hafa allir verið í gríska bikarnum. Síðasti leikur Ögmundar fyrir Olympiacos kom þann 4. mars síðastliðinn í 1-1 jafntefli við Aris Saloniki.

Rúnar Alex Rúnarsson (Arsenal – 7 landsleikir) hefur komið við sögu í sex leikjum fyrir Arsenal á tímabilinu en er nú vera orðinn þriðji markvörður liðsins. Rúnar hefur verið að glíma við hnémeiðsli en virðist nú vera orðinn heill heilsu. Síðasti leikur hans fyrir Arsenal kom gegn Wolves í ensku úrvalsdeildinni í byrjun febrúarmánaðar þar sem hann kom inn sem varamaður og spilaði 15 mínútur.

Varnarmenn: 

Birkir Már Sævarsson (Valur – 95 landsleikir, 2 mörk) það er svipaða sögu að segja af Birki Má eins og Hannesi. Birkir hefur tekið þátt í Lengjubikarnum með Val og þekkir þessa stöðu vel. Síðasti leikur hans fyrir Val var gegn KR í Lengjubikarnum um síðustu helgi.

Sverrir Ingi Ingason (PAOK – 36 landsleikir, 3 mörk) hefur verið fastamaður í byrjunarliði PAOK á tímabilinu. Sverrir hefur komið við sögu í 33 leikjum, skorað sex mörk og gefið tvær stoðsendingu. Sverrir Ingi er í toppformi um þessar mundir, hann átti stoðsendingu í 3-1 sigri PAOK gegn AEK um síðustu helgi.

Ragnar Sigurðsson (Rukh Lviv – 97 landsleikir, 5 mörk) hefur verið að koma sér fyrir í Úkraínu en hann samdi við Rukh Lviv þar í landi í janúar. Hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið þann 8. mars síðastliðinn er hann lék 45 mínútur í 4-0 tapi. Fyrir þetta hafði Raggi komið við sögu í fjórum leikjum með FC Kaupmannahöfn.

Alfons Sampsted (Bodö/Glimt – 2 landsleikir) varð Noregsmeistari á síðasta tímabili en er nú á miðju undirbúningstímabili með félaginu. Síðasti mótsleikur Alfonsar kom þann 19. desember er hann spilaði 77 mínútur í 3-0 sigri gegn Viking í norsku úrvalsdeildinni.

Ari Freyr Skúlason (KV Oostende – 77 landsleikir) hefur komið við sögu í 20 leikjum fyrir Oostende á tímabilinu. Ari spilaði 73 mínútu 1-0 sigri gegn Mouscron í belgísku úrvalsdeildinnu um síðustu helgi.

Kári Árnason (Víkingur Reykjavík – 87 landsleikir, 6 mörk) er á miðju undirbúningstímabili með Víkingum. Var í byrjunarliði Víkinga gegn Keflavík í 8-liða úrslitum Lengjubikarsins um síðustu helgi.

Kári Árnason

Hörður Björgvin Magnússon (CSKA Moskva – 34 landsleikir, 2 mörk) fastamaður í byrjunarliði CSKA. Hefur komið við sögu í 27 leikjum á tímabilinu og spilaði síðast 90 mínútur  í 3-2 tapi gegn Zenit þann 17.mars.

Hólmar Örn Eyjólfsson ( Rosenborg – 19 landsleikir, 2 mörk) er á miðju undirbúningstímabili með Rosenborg fyrir átökin í norsku úrvalsdeildinni. Síðasti mótsleikur hans kom þann 22. desember síðastliðinn er hann spilaði 90 mínútur gegn Sandefjord.

Hjörtur Hermannsson (Bröndby – 18 landsleikir, 1 mark) hefur verið í byrjunarliði Bröndby í undanförnum leikjum í dönsku úrvalsdeildinni. Hjörtur lék allan leikinn í 1-1 jafntefli Bröndby gegn AGF um síðustu helgi. Hjörtur hefur alls komið við sögu í 18 leikjum á tímabilinu.

Miðjumenn:

Guðlaugur Victor Pálsson (Darmstadt – 23 landsleikir) hefur komið við sögu í 16 leikjum fyrir Darmstadt á tímabilinu, liðið leikur í næstefstu deild í Þýskalandi. Guðlaugur var frá í ellefu leiki á tímabilinu 22. nóvember til 24. janúar vegna meiðsla en er nú kominn á fullt aftur með liðinu. Síðasti leikur hans með Darmstadt kom um síðustu helgi þar sem hann spilaði allan leikinn í 1-1 jafntefli gegn Eintracht BraunSchweig.

Aron Einar Gunnarsson (Al-Arabi – 91 landsleikur, 2 mörk) er lykilmaður hjá Al-Arabi og að sögn Freys Alexandersonar, aðstoðarþjálfara Al-Arabi er Aron í fantaformi – „Aron er bara hrikalega mikilvægur fyrir okkur og hann er í þrusu standi. Hann hefur verið að spila hrikalega vel,“ sagði Freyr í viðtali við Hörð Snævar í sjónvarpsþætti 433.is fyrir stuttu síðan

Mér líður mjög vel, við þurfum bara að taka stöðuna leik eftir leik. En eins og er líður mér mjög vel, er í góðu formi, meiðslafrír,“ sagði Aron Einar á blaðamannafundi íslenska landsliðsins í dag.

Aron Einar Gunnarsson

Birkir Bjarnason (Brescia – 92 landsleikir, 13 mörk) var í byrjunarliði Brescia um síðustu helgi og spilaði allan leikinn í 1-0 tapi gegn Salernitana í ítölsku B-deildinni. Birkir hefur komið við sögu í 18 leikjum fyrir Brescia á tímabilinu, skorað þrjú mörk og gefið 1 stoðsendingu.

Rúnar Már Sigurjónsson (CFR Cluj – 30 landsleikir, 1 mark) skipti yfir til CFR Cluj í febrúar og spilaði sínar fyrstu mínútur fyrir félagið í 4-0 sigri þann 14. mars. Rúnar spilaði síðan 37. mínútur í 3-0 tapi gegn FCSB um síðustu helgi.

Arnór Ingvi Traustason (New England Revolution – 37 landsleikir, 5 mörk) er nýlega gengin til liðs við New England. Síðasti keppnisleikur Arnórs kom þann 6. mars síðastliðinn er hann spilaði 28 mínútur fyrir Malmö í 4-1 sigri gegn Halmstad í Svenska Cupen.

Jóhann Berg Guðmundsson (Burnley – 77 landsleikir, 8 mörk) hefur verið að glíma við meiðsli á tímabilinu en var í byrjunarliði Burnley í síðustu tveimur leikjum gegn Arsenal og Everton þar sem hann spilaði yfir 65 mínútur í báðum leikjunum. Alls hefur Jóhann Berg spilað 19 leiki á tímabilinu og skorað 2 mörk.

Jóhann Berg er mikið spurningarmerki á þessari stundu. Hann hefur ekki geta æft af fullum krafti með íslenska landsliðinu í Þýskalandi síðustu daga og mun ekki spila í leiknum á morgun gegn Þjóðverjum.

Getty Images

Arnór Sigurðsson (CSKA Moskva – 11 landsleikir, 1 mark) hefur verið að koma inn af bekknum í liði CSKA. Arnór hefur komið við sögu í 23 leikjum á tímabilinu, skorað 2 mörk og gefið tvær stoðsendingar.

Sóknarmenn:

Jón Daði Böðvarsson (Millwall – 55 landsleikir, 3 mörk) hefur komið við sögu í 35 leikjum hjá Millwall á tímabilinu, skorað 1 mark og gefið 2 stoðsendingar. Jón Daði kom inn sem varamaður á 64. mínútu í 1-0 sigri gegn Middlesborough um síðustu helgi.

Kolbeinn Sigþórsson (IFK Gautaborg – 60 landsleikir, 26 mörk) skipti yfir til Gautaborgar frá AIK í janúar. Hann spilaði í 18 mínútur gegn Norrköping í Svenska Cupen þann 7. mars síðastliðinn og var í byrjunarliði í leik gegn IK Sirius þann 13. mars.

„Ég sá hans síðasta leik, hann spilaði 45 mínútur. Hann virðist vera eins og fyrir nokkrum árum, kannski ekki alveg jafn frískur. Styrkleikar hans í stöðunni 1 á móti 1 var sá sami og líkamlegur styrkur, þrátt fyrir að hann sé ekki 100 prósent klár í 90 mínútur þá er hann mikilvægur fyrir íslenska landsliðið,“ sagði Lars Lagerback á blaðamannafundi í dag þegar landsliðshópurinn var kynntur.

Kolbeinn Sigþórsson

Albert Guðmundsson (AZ Alkmaar – 18 landsleikir, 3 mörk) er orðinn reglulegur byrjunarliðsmaður hjá AZ Alkmaar. Albert hefur komið við sögu í 28 leikjum á tímabilinu, skorað 8 mörk og gefið 3 stoðsendingar. Síðast spilaði Albert 66 mínútur í 2-0 sigri gegn PSV í hollensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi.

Hólmbert Aron Friðjónsson (Brescia – 4 landsleikir, 2 mörk) hefur verið að koma inn af bekknum í undanförnum leikjum Brescia. Síðast spilaði hann síðasta stundarfjórðunginn í 1-0 sigri gegn Reggina þann 16. mars. Hólmbert hefur komið við sögu í 8 leikjum á tímabilinu.

Leikir Íslands í næsta landsliðsverkefni – Upphaf undankeppni HM: 

25. mars: Þýskaland – Ísland (klukkan 19:45)
28. mars: Armenía – Ísland (klukkan 16:00)
31. mars: Liechtenstein – Ísland (18:45)

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Líflína fyrir leikmann Chelsea – Fer hann fyrir gluggalok?

Líflína fyrir leikmann Chelsea – Fer hann fyrir gluggalok?
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Staðfestir að hann vilji komast á sitt síðasta HM – Tilbúinn að spila allar stöður

Staðfestir að hann vilji komast á sitt síðasta HM – Tilbúinn að spila allar stöður
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Emery virðist staðfesta að Arsenal þurfi að horfa annað

Emery virðist staðfesta að Arsenal þurfi að horfa annað
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Sjáðu umdeilda atvik gærdagsins – Voru dómararnir góðir við Liverpool?

Sjáðu umdeilda atvik gærdagsins – Voru dómararnir góðir við Liverpool?
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Telja morgunljóst að fyrsti brottrekstur ársins á Íslandi verði þarna – „Mér finnst þetta bara svo lélegt“

Telja morgunljóst að fyrsti brottrekstur ársins á Íslandi verði þarna – „Mér finnst þetta bara svo lélegt“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Segir Arsenal að gleyma hugmyndinni – ,,Það er ekki séns“

Segir Arsenal að gleyma hugmyndinni – ,,Það er ekki séns“
433Sport
Í gær

Yfirgaf eiginkonuna fyrir ‘graðan’ strippara: Sér ekki eftir neinu – ,,Ég varð háður henni“

Yfirgaf eiginkonuna fyrir ‘graðan’ strippara: Sér ekki eftir neinu – ,,Ég varð háður henni“
433Sport
Í gær

England: Salah með tvennu gegn Bournemouth – Moyes óstöðvandi

England: Salah með tvennu gegn Bournemouth – Moyes óstöðvandi
433Sport
Í gær

Ísland vann stórsigur á nágrönnunum

Ísland vann stórsigur á nágrönnunum