CNN skýrir frá þessu og segir að tilkynningin hafi valdið miklum áhyggjum í Tyrklandi en heimilisofbeldi og annað ofbeldi gagnvart konum er algengt þar í landi.
Tyrkland var fyrsta ríkið til að skrifa undir sáttmála Evrópuráðsins um vernd og baráttu gegn heimilisofbeldi og öðru ofbeldi gagnvart konum 2011. Istanbúlsáttmálinn snýst um að koma í veg fyrir ofbeldi gagnvart konum, þar á meðal heimilisofbeldi og binda enda á refsileysi gerendanna.
Ekki er ljóst af hverju Erdogan ákvað að segja Tyrki frá sáttmálanum en tyrknesk mannréttindasamtök hafa gagnrýnt ákvörðunina en íhaldsmenn segja að sáttmálinn skaði fjölskyldugildi.
Almenn umræða um sáttmálann fór á fullt í ágúst þegar trúarhópar og hópar íhaldsmanna byrjuðu ákafar herferðir gegn sáttmálanum og sögðu hann skaða fjölskyldugildi og vera hinsegin fólki til framdráttar.
Talsmenn Erdogan hafa sagt að það að Tyrkir hafi sagt sig frá sáttmálanum þýði ekki að slakað verði á reglum hvað varðar heimilisofbeldi og réttindi kvenna.
Stjórnarandstaðan segir að ákvörðunin sé tilraun Erdogan og stjórnar hans til að „gera konur að annars flokks þjóðfélagsþegnum“ og hét því að Tyrkland gerist aftur aðili að sáttmálanum.