Fjárútlátin hafa aðallega verið í tengslum við fjáröflunarsamkomur samtakanna. Ein slík var haldin um síðustu helgi og kostaði samtökin 225.000 dollara að sögn HuffPost. Forsetinn fyrrverandi hefur búið á Mar-a-Lago síðan hann lét af embætti í janúar.
Samkvæmt frétt HuffPost þá sýna gögn frá skattyfirvöldum að samtök Lara Trump hafi greitt tæplega 1,9 milljónir dollara í kostnað til Mar-a-Lago í tengslum við fjáröflunarsamkomur síðan 2014. Lara Trump, sem er gift Eric Trump, hefur verið formaður samtakanna síðan 2018.
Donald Trump‘s Trump Foundation, sem var lagt niður 2019, og Eric Trump‘s Foundation eru þekkt fyrir að hafa notað peninga frá velgerðarmönnum til að greiða fyrir eitt og annað á stöðum í eigu Donald Trump. Forsetinn fyrrverandi játaði í dómsskjölum að hafa notað peninga góðgerðasamtaka til að kaupa andlitsmynd af sjálfum sér.
Lauren Simmons, stofnandi Big Dog Ranch Rescue, er grjótharður stuðningsmaður Trump og tjáir sig oft á samfélagsmiðlum til stuðnings Trump og hefur einmitt margoft tekið undir staðlausar ásakanir hans um kosningasvindl í forsetakosningunum í nóvember.