En það var ekki nóg með að veltan hafi aukist því hagnaðurinn jókst einnig eða um 19%. Sérfræðingar sáu skýr merki á síðasta ári um að vegna heimsfaraldursins léki fólk sér meira með börnum sínum enda margir heima langtímum saman. Af þessum sökum jókst salan á spilum, púsluspilum og byggingaleikföngum mikið en Lego ber höfuð og herðar yfir aðra framleiðendur á sviði byggingaleikfanga.
Stærstu keppinautarnir, Hasbro og Mattel, standa Lego langt að baki hvað varðar stærð en velta þeir var mun minni en velta Lego.