Hann er ekki hættur að tjá sig um faraldurinn því í síðustu viku kom hann fram á opinberum atburði og sagði að það þýði ekki að fyllast örvæntingu og fylgja þessari „verum heima“ stefnu. „Fólk mun deyja úr hungri eða þunglyndi,“ sagði hann.
„Það er komið nóg af þessu. Hversu lengi á að halda áfram að væla? Hversu lengi ætlið þið að vera heima og loka öllu? Enginn getur haldið þetta út lengur,“ sagði hann einnig.
Tilraunir hans til að draga úr alvarleika faraldursins koma á sama tíma og sérfræðingar segja að Brasilía sé á viðkvæmasta stigi faraldursins til þessa. Smitum og dauðsföllum hefur fjölgað mikið að undanförnu. Að undanförnu hafa um 75.000 smit greinst á sólarhring og á annað þúsund manns látast daglega af völdum COVID-19.
Það er aðallega brasilíska afbrigði veirunnar, sem heitir P1, sem veldur þessari skelfilegu þróun en afbrigðið getur smitað þá sem hafa áður smitast af veirunni og myndað mótefni. P1 virðist geta farið fram hjá ónæminu. Gonzalo Vecina Neto, læknir og fyrrum yfirmaður heilbrigðisyfirvalda landsins sagði í síðustu viku að útlitið hafi aldrei verið eins slæmt síðan faraldurinn skall á.
Í síðustu viku voru andlát af völdum COVID-19 næstum fjórðungi fleiri en í vikunni á undan og ástandið getur versnað enn frekar. Sérfræðingar hafa varað ríkisstjórn landsins við því að ef ekki verður gripið til harðra aðgerða muni um 3.000 manns látast daglega af völdum COVID-19 innan ekki svo langs tíma.