Stikla fyrir kvikmyndina After We Fell kom út á Valentínusardaginn, 14. febrúar síðastliðinn. Síðan þá hefur hún vakið talsverða athygli, en netverjar líkja myndinni við Fifty Shades Of Grey.
After We Fell er byggð á samnefndri bók eftir Önnu Todd sem kom. Bókin er sú þriðja af fimm í seríunni.
Í myndinni fylgjumst við áfram með ástarævintýrum Tessu Young og Hardin Scott. Leikararnir Josephine Langford og Hero Fiennes Tiffin, bæði 23 ára, fara með aðalhlutverkin.
Aðdáendur After-kvikmyndanna og bókanna hafa lýst ánægju sinni yfir líkindum myndarinnar og bókarinnar. Í stiklunni má sjá fjölda kynlífssena sem eru einnig í bókinni.
Horfðu á stikluna hér að neðan.
Það leið ekki að löngu þar til netverjar fóru að bera saman stikluna við hina erótísku Fifty Shades Of Grey.
„Þetta er eins og unglingaútgáfan af Fifty Shades Of Grey,“ segir einn netverji.
„Þetta fór frá því að vera rómantísk falleg mynd í Fifty Shades,“ segir annar.
„Breytið nafninu á myndinni í „After we shades of grey,““ sagði netverji.
Fjölmargir aðdáendur voru himinlifandi að atriði úr bókinni væru líka í kvikmyndinni, eins og þegar þau eru í heita pottinum eða stunda símakynlíf.
„Þetta er alveg eins og í bókinni!!“ Sagði spenntur aðdáandi.