Um er að ræða bréf sem lögreglumaður, sem að sögn villti á sér heimildir og blekkti tvo af lífvörðum Malcom X til að fremja glæp nokkrum dögum áður en hann var myrtur, skrifaði á dánarbeði sínu. Mennirnir voru handteknir í kjölfarið og gátu því ekki sinnt öryggisgæslu í Audubon Ballroom í Washington Heights daginn sem Malcolm X var myrtur.
The Guardian skýrir frá þessu. Fram kemur að lögreglumaðurinn hafi heitið Raymond Wood. Það var frænka hans sem heimilaði birtingu þess að honum látnum. Það var lesið upp á fréttamannafundi á laugardaginn þar sem dætur Malcolm X og fleiri ættingjar voru viðstaddir. Ekki var skýrt frá neinu varðandi andlát Wood.
Í bréfinu segir hann að yfirmenn hans í lögreglunni hafi fyrirskipað honum hvetja félaga í mannréttindahópum til að fremja afbrot.
Á síðasta ári tók Netflix til sýninga heimildarmyndaþáttaröðina „Who Killed Malcolm X?“ þar sem meðal annars var velt upp hvort tveir af þeim þremur sem voru sakfelldir fyrir morðið hafi verið saklausir. Í kjölfar sýningar heimildarmyndarinnar tók Cyrus Vance Jr. saksóknari á Manhattan, málið til skoðunar. Í kjölfar fréttamannafundarins á laugardaginn sagði hann að enn væri verið að skoða málið. Lögreglan í New York sendi frá sér yfirlýsingu eftir fréttamannafundinn og sagðist hafa afhent Vance öll gögn sem tengjast málinu. FBI hefur ekki tjáð sig um málið.