Vanessa Francois heitir kona frá Port-au-Prince í Haiti sem búsett hefur verið á Íslandi frá því 2008. Ættingjar hennar eru flestir búsettir á Haiti. Jarðskjálftinn mikli sem varð á Haiti í janúar árið 2010 og mældist 7,0 á Richter, markar djúp sár í sál Vanessu, en fjórar systur hennar og ein frænka létu lífið í jarðskjálftanum.
Jarðskjálftinn varð á 13 kílómetra dýpi og hrina eftirskjálfta upp á 5,0 til 5,9 á Richter og rúmlega það fylgdi í kjölfarið. Gífurlegt mannfall varð í skjálftanum sem lagði stóran hluta landsins í rúst.
Sterkasti jarðskjálftinn sem reið yfir hér á landi í morgun var 5,7 sem er töluvert minna en skjálftinn mikli á Haiti. Gera má ráð fyrir því að mannvirki hér séu almennt sterkbyggðari en á Haiti. Engin meiðsli á fólki eða skemmdir á verðmætum urðu í skjálftunum sem urðu hér í dag.
Vanessa hringdi skelfingu lostin í ritstjórn DV og spurði hvað væri að gerast og hvers mætti vænta. Þegar mesta skjálftahrinan reið yfir í morgun klæddi hún yngsta barnið sitt í snarhasti og hljóp út úr húsi með öllum þremur dætrum sínum.
Vanessa hefur leitað ráða um hvernig bera eigi sig að í jarðskjálfta og fengið fullvissu um að þær hörmungar sem urðu í heimalandi 2010 séu ekki yfirvofandi hér. Rétt er þó að hafa í huga að stærri skjálftar en þeir sem riðu yfir í morgun gætu orðið á næstunni.
„Ég var úti í allan dag, ég var dauðhrædd,“ segir Vanessa. Hún segir að ættingjar hennar hafi dáið er hús hrundi sem hún hafði átt þátt í að byggja og hefur valdið henni mikilli sektarkennd. „Móðir mín hefur alltaf ásakað mig vegna þess sem gerðist í Haiti og þessa vegna eigum við ekki gott samband,“ segir Vanessa.
„Ég missti ekki bara fjórar systur heldur líka frænku og marga vini mína,“ segir Vanessa og á mjög erfitt með að ná rósemi eftir atburðina í dag.
„Guð minn góður,“ sagði Vanessa þegar blaðamaður sagði henni að það gæti komið sterkari jarðskjálfti. Hann gerðist þó svo djarfur að fullvissa hana um að hörmungar á borð við þær sem riðu yfir Haiti árið 2010 myndu ekki verða hér. Vanessa varð mjög hissa þegar blaðamaður tjáði henni að enginn hefði slasast í jarðskjálftunum í dag og ekki hefðu orðið neinar skemmdir á verðmætum.
Á vef Almannavarna má finna góð ráð varðandi varnir og viðbúnað gegn jarðskjálfta. „Festið skápa, hillur og þunga muni í gólf eða vegg. Hafið hjól sem eru á húsgögnum alltaf í læstri stöðu. Ef engin læsing er á hjólunum, setjið þá ramma utan um hjólin til að koma í veg fyrir að húsgögnin fari af stað í jarðskjálfta. Munið hins vegar að rammi eða læsing á hjólum kemur ekki í veg fyrir að húsgögn velti. Festið létta skrautmuni með kennartyggjó,“ er meðal þess sem þar stendur. Einnig er ráðið gegn því að stilla þungum munum ofarlega í hillur án þess að þeir séu tryggilega festir.
Á meðan skjálfti gengur yfir er gott að krjúpa, skýla og halda úti í horni við burðarvegg eða krjúpa undir borð, skýla höfði og halda sér í.
Margar fleiri ráðleggingar er að finna þarna sem gott er að kynna sér.