Í dagbók lögreglu sem greinir frá atburðum seinasta kvölds og nætur kemur fram að lögregla hafi heimsótt 16 skemmtistaði til að hafa aðhald með gildandi sóttvarnarreglum. Fram kemur að á flestum stöðum hafi ástandið verið gott, ein á einum stað hafi allt of margir gestir verið viðstaddir og ekki unnt að tryggja tveggja metra nálægðarmörk milli ótengdra hópa. Það sé nú rannsakað sem brot á reglum um samkomutakmarkanir.
Athygli vekur að á Lögreglustöð 1. sem sér um Austurbæ, Miðbæ, Vesturbæ og Seltjarnarnes hafi öll skráð atvik átt sér stað á milli tíu og ellefu um kvöldið. Fyrst hafi það verið fíkniefna og umferðarlagabrot, annað brotið hafi einnig varðað fíkniefni, það þriðja varðaði slagsmál, og síðan það fjórða og seinasta, en þar voru einstaklingar á hóteli sem neituðu að yfirgefa það.
Í öðrum hverfum virðist eitthvað hafa verið um að vera. Tilkynnt hafi verið um líkamsárás í Hafnarfirði, innbrotstilraun í Kópavogi, og innbrotstilraun í Breiðholti. Í síðastnefnda atvikinu hafi einn verið grunaður og handtekinn. Þá virðist umferðaróhapp hafa átt sér stað í Grafarvogi.