„Þetta er óhikað gert á sama hátt og þeir gerðu í seðlabankamálinu,“ hefur Morgunblaðið eftir Þorsteini í umfjöllun um málið í dag.
Í Kveik voru forsvarsmenn Samherja sagðir hafa svikið samstarfsfólk sitt í Namibíu sem þeir ráku útgerðina Arcticnam með. Þessi samstarfsmenn létu gera rannsókn á samstarfinu og í skýrslu um hana er fullyrt að Samherjamenn hafi dregið sér fjármuni með því að ofgreiða félögum Samherja eða þeim tengdum fyrir þjónustu.
Morgunblaðið hefur eftir Þorsteini að ekkert hafi komið fram sem ekki sé hægt að hrekja. Samherji hafi greitt verulega skatta til Íslands vegna skipa sem aldrei komu hingað til lands. Hann sagðist einnig nýlega hafa fengið skýrslu rannsakenda, sem voru ráðnir af fyrrum samstarfsmönnum Samherja í Namibíu, og sagði hann skýrsluna uppfulla af fyrirvörum. „RÚV hefur mikið af gögnum sem enginn annar hefur og sýndi okkur engin gögn,“ sagði hann.
Þorsteinn sagði að fullyrðingar um að fiskur hafi verið seldur á undirverði hafi verið settar fram með fyrirvara um að rannsakendur hafi ekki séð fisksölureikninga. „Það eru mjög margir fyrirvarar í þessari skýrslu sem við munum svara fyrir. Fyrirvörunum sér RÚV ekki ástæðu til að gera grein fyrir,“ sagði hann og bætti við: „Ég verð ekki andvaka yfir þessum þætti í nótt.“
Hvað varðar skýrslu sem Samherji lét gera um rannsókn á eigin starfsemi sagði Þorsteinn að ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvort hún verði gerð opinber á næstunni.