Það var hugveitan Tokyo Shoko Research sem gerði könnunina. 56% aðspurðra sögðust telja að annað hvort eigi að aflýsa leikunum eða fresta þeim þar til síðar. Samkvæmt áætlun eiga leikarnir að fara fram frá 23. júlí til 8. ágúst.
Hugveitan gerði svipaða könnun í ágúst á síðasta ári og þá vildu 53,6% aðspurðra að leikunum yrði aflýst eða frestað.
Í nýju könnuninni sögðust aðeins 7,7% vilja að leikarnir fari fram eins og fyrirhugað er í sumar. Fyrir hálfu ári var hlutfallið 22,5%.
Rúmlega 70% fyrirtækjanna sögðu að það muni hafa mjög lítil eða engin áhrif á efnahag þeirra þótt leikunum verði aflýst eða frestað.
En niðurstöður annarrar könnunar, sem var gerð meðal 100 stærstu fyrirtækja landsins, sýndi aðra niðurstöðu því samkvæmt henni þá vilja 61% að leikarnir fari fram í sumar, annað hvort í óbreyttri mynd eða þá að umfang þeirra verði minnkað.
Könnun, sem var gerð í byrjun febrúar, meðal íbúa í Tókýó sýndi að 61% vilja að leikunum verði frestað eða aflýst. Andstaðan við að leikarnir verði haldnir í sumar mældist meiri í fyrir könnunum.