„Jafnvel þótt ég viti að það sé rangt að taka mannslíf, þá taldi ég ekki að það væri rétt að svipta sjálfan mig möguleikanum á að taka líf annarrar manneskju. Alls ekki þegar það var manneskja sem skipti svo litlu fyrir heiminn og sjálfa sig,“ segir meðal annars í bókinni og segir síðan: „Á þeim tíma var eins og þetta myndi verða mikilvægur lærdómur og reynsla, eins og að missa sveindóminn eða eignast barn.“
Þrátt fyrir að þessi skrif séu rúmlega tveggja áratuga gömul eiga þau kannski betur við núna en áður í kjölfar þeirra ásakana sem hafa verið settar fram á hendur Manson.
Í bókinni segir hann einnig opinskátt frá ýmsum hugsunum sínum eins og að hann hafi í alvöru íhugað að myrða fyrrum ástkonu sína, Nancy að nafni. Fjölmiðlar á borð við PageSix og News.com.au segja að hann lýsi því að hann hafi skipulagt morðið en hafi hætt við kvöldið sem hann ætlaði að myrða hana því þá hafi mikið sírenuvæl glumið. „Ég áttaði mig á þeirri staðreynd að ég hafði sagt mörgum hversu mikið ég hataði hana. Jafnvel besta áætlunin var ekki nægilega góð til að vernda okkur fyrir tilviljunum á borð við lögreglubíla sem áttu leið hjá,“ skrifar hann.
Á öðrum stað í bókinni lýsir hann því að „falleg brúnhærð kona“ hafi hafnað honum og vini hans. Hún hafi ekki viljað líta við þeim. Hann skrifar að hann hafi orðið að ná athygli hennar. Af þeim sökum hafi hann hringt i hana á hverjum degi í tæpan mánuð. Í fyrstu hafi símtölin verið meinlaus en síðan hafi hann farið að hóta henni. „Þú skalt sleppa því að fara úr vinnunni í kvöld því við ætlum að nauðga þér á bílastæðinu og síðan kremja þig undir bílnum þínum,“ segir hann að hann hafi sagt við konuna.
Það var leikkonan Evan Rachel Wood sem kom máli Manson af stað þegar hún skrifaði færslu sem vakti mikla athygli. „Ég var heilaþvegin og blekkt til undirgefni. Ég er hætt að lifa í ótta við refsingar, lygar og kúgun. Ég geri þetta til að segja frá þessum hættulega manni og til að fordæma þau fyrirtæki sem hafa samþykkt þennan mann, því hann eyðileggur mörg líf. Ég stend með fórnarlömbunum sem vilja ekki lengur þegja,“ skrifaði hún.
Ekki leið á löngu þar til fleiri konur létu heyra í sér og sökuðu Manson um ofbeldi. Nú hefur að minnsta kosti tugur kvenna stigið fram og plötufyrirtæki hans hefur rift samningnum við hann.
Sjálfur er Manson í felum og hefur lítið tjáð sig um ásakanirnar en sagði þó í upphafi að þær væru ekki réttar. „Líf mitt og list hefur verið segull fyrir deilur en þessar ásakanir í minn garð eru hræðilegar afbakanir á raunveruleikanum,“ sagði hann.