Jean-Clair Todibo leikmaður OGC Nice en leikmaðurinn er á láni frá Barcelona en hann ræddi á dögunum reglu sem að allir leikmenn Barcelona verða að fylgja á æfingasvæði félagsins.
Reglan er sú að enginn leikmaður megi tækla Messi harkalega á æfingum en það kemur lítið á óvart að Barcelona geri allt til þess að koma í veg fyrir að stórstjarnan meiðist.
„Hann mátti ekki meiðast, við vissum það allir og maður þurfti að verjast gegn honum varlega, ég er þakklátur að hafa fengið að æfa með honum og hef lært mikið af honum og ég hef meira að segja fengið að tækla hann nokkrum sinnum en ég passaði mig samt alltaf“ segir Todibo um að æfa með Messi.
Thierry Henry hefur einnig tjáð sig um það hvernig sé að æfa með Messi og segir leikmanninn með miklu meira keppnisskap en margir gera sér grein fyrir .
„Þegar að hann fékk ekki aukaspyrnu á æfingu þá hljóp hann til markmannsins bað um boltann rak hann í gegnum allan völlinn bálreiður og skoraði“ segir Henry.