fbpx
Sunnudagur 01.september 2024
Pressan

Þjóðverjar framlengja sóttvarnaaðgerðir en hárgreiðslustofur mega þó opna á nýjan leik

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 11. febrúar 2021 05:38

Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, tilkynnti í gær að núgildandi sóttvarnaaðgerðir, sem eru í gildi í landinu, verði framlengdar til 7. mars að stærstum hluta. Merkel og leiðtogar sambandsríkjanna 16 náðu samkomulagi um þetta á fundi í gær. Að honum loknum sagði Merkel að betra væri að fara varlega og því verði aðgerðirnar framlengdar.

Þetta þýðir að verslanir, sem ekki selja nauðsynjavörur, verða áfram lokaðar sem og skólar. Þó er gert ráð fyrir að sambandsríkin geti hvert og eitt tekið ákvarðanir um enduropnun skóla. Dpa segir að í sumum sambandsríkjum hafi yfirvöld nú þegar gert áætlanir um enduropnun skóla og að hún hefjist í næstu viku.

Þeir sem eru komnir með hressilegt „kórónuhár“ fengu góð tíðindi frá Merkel í gær því hárgreiðslustofur mega hefja starfsemi á nýjan leik frá 1. mars. Hún sagði einnig að framlenging sóttvarnaaðgerðanna væri til að reyna að koma í veg fyrir nýja bylgju af faraldrinum og því væri betra að fara hægt í að aflétta sóttvarnaaðgerðum.

Merkel mun funda með leiðtogum sambandsríkjanna þann 3. mars þar sem mat verður lagt á hvort sóttvarnaaðgerðirnar verði framlengdar enn frekar eða byrjað að slaka á þeim. Dpa segir að leiðtogarnir séu sammála um að þeir muni skoða að byrja að slaka á sóttvarnaaðgerðum þegar fjöldi smitaðra er undir 35 á hverja 100.000 íbúa í sjö daga samfellt. Þegar það næst verður skoðað að leyfa verslunum að opna á nýjan leik sem og söfnum. Síðustu sjö daga er hlutfall smitaðra í landinu 78,1 á hverja 100.000 íbúa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Var Kurt Cobain myrtur?
Pressan
Í gær

Óhugnanlegt atvik: Þrír hundar réðust á konu með barnavagn

Óhugnanlegt atvik: Þrír hundar réðust á konu með barnavagn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sat látin við skrifborðið sitt í nokkra daga og enginn tók eftir því

Sat látin við skrifborðið sitt í nokkra daga og enginn tók eftir því
Pressan
Fyrir 2 dögum

Undarleg afgreiðsla máls hjá austurríska hernum – „Á ég að totta þig?“

Undarleg afgreiðsla máls hjá austurríska hernum – „Á ég að totta þig?“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lík hans fannst í helli árið 1977 – Nú er loksins búið að bera kennsl á hann

Lík hans fannst í helli árið 1977 – Nú er loksins búið að bera kennsl á hann
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fjöldaslátrun á villtum afrískum dýrum framundan

Fjöldaslátrun á villtum afrískum dýrum framundan
Pressan
Fyrir 3 dögum

Deadpool-morðinginn dæmdur til dauða: „Ég hef aldrei séð neinn jafn illan og hann“

Deadpool-morðinginn dæmdur til dauða: „Ég hef aldrei séð neinn jafn illan og hann“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Birta myndir af líkum fórnarlamba fjöldamorðs bandarískra hermanna

Birta myndir af líkum fórnarlamba fjöldamorðs bandarískra hermanna
Pressan
Fyrir 4 dögum

Meiri líkur á bílveiki þegar ekið er í rafbíl

Meiri líkur á bílveiki þegar ekið er í rafbíl