En í fimm af þessum tólf kílóa ostum var búið að koma fyrir tíu kílóum af kókaíni. Aftonbladet skýrir frá þessu.
Lögreglan hafði fengið veður af smyglinu og fylgdist með. Einn hinna ákræðu ók í ágúst á síðasta ári til Hollands í sendibíl, sem þeir höfðu leigt. Þar hitti hann tvo Þjóðverja sem hlóðu ostunum í bílinn. Því næst var ekið til Gautaborgar þar sem ostarnir voru teknir úr bílnum í geymsluhúsnæði einu. Þá lét lögreglan til skara skríða og handtók mennina á staðnum.
„Þetta er mjög óvenjulegt. Ég hef aldrei á ferli mínum rannsakað mál þar sem reynt hefur verið að smygla fíkniefnum í ostum. Fíkniefnin voru falin inni í ostunum svo það hlýtur mikil undirbúningsvinna að hafa legið að baki. Kannski héldu þeir að þeir gætu blekkt fíkniefnahundana,“ er haft eftir Pether Lundin, sem stýrði rannsókninni, í fréttatilkynningu frá lögreglunni.
Ostasérfræðingur var fenginn til aðstoðar við rannsóknina. Hann komst að þeirri niðurstöðu að ostarnir, sem kókaínið var falið í, væru um þriggja mánaða gamlir. Hann sagði að um hágæðaosta væri að ræða og ekki eitthvað sem hefði verið gert í heimahúsi.
Fjórmenningarnir neita sök og segjast aðeins hafa verið að aðstoða vin sinn við að flytja ostana og að þeir hafi ekki haft hugmynd um að kókaín væri í þeim.