fbpx
Þriðjudagur 04.febrúar 2025
Eyjan

Unnþór spyr hvers vegna veirunni er ekki útrýmt hér á landi – „Þau rök hafa augljóslega ekki haldið vatni“

Máni Snær Þorláksson
Föstudaginn 29. janúar 2021 22:30

Mynd/Samsett

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Unnþór Jónsson, sem titlar sjálfan sig sem kóvita, birti í dag pistil á Vísi þar sem hann velti því fyrir sér hvers vegna heilbrigðisyfirvöld hér á landi væru ekki að stefna að því að útrýma veirunni. Unnþór bendir til dæmis á lönd eins og Nýja-Sjáland en þar hefur lífið verið nokkuð eðlilegt þrátt fyrir faraldurinn sem geisar ennþá um heiminn allan.

„Varla líður sá dagur sem heilbrigðisyfirvöld eru ekki spurð út í næstu tilslakanir á sóttvarnaaðgerðum. Í ljósi góðrar stöðu hér á landi samanborið við ástandið á meginlandi Evrópu er ekki nema von að fólk spyrji. Með þeim fyrirvara að ég hef ekki sérfræðiþekkingu á þessu sviði tel ég þó að verið sé að spyrja rangrar spurningar. Frekar ætti að spyrja hvers vegna ekki sé verið að stefna að útrýmingu veirunnar. Þá fyrst fengjum við alvöru tilslakanir,“ segir Unnþór í pistlinum.

Hann segir að reglulega hafi verið rætt um að lifa með veirunni og vill meina að hugmyndin um veirufrítt samfélag hafi aldrei ratað upp á pallborðið. „Þrátt fyrir það hafa mörg lönd ekki einungis stefnt að því heldur líka tekist það og uppskorið ríkulega fyrir vikið. Það eru enda fjölmargar góðar ástæður fyrir þeirri stefnu. Mér sýnast mótrökin fyrir útrýmingu veirunnar hérlendis hafa aðallega verið þrenns konar: Það sé óraunhæft, of íþyngjandi og efnahagslega óskynsamlegt. Skoðum þau aðeins betur auk annarra hugsanlegra mótbára gegn þeirri stefnu á þessum tímapunkti.“

„Það er því einfaldlega rangt“

Unnþór segir að fólk sé fljótt að benda á að veirufrítt samfélag sé óraunhæft. Sama fólkið bendir á að það þyrfti að loka landamærunum til að ná því markmiði en veiran gæti samt sloppið í gegnum landamærin þrátt fyrir lokanir. „Þær röksemdir hrynja hins vegar fljótt þegar litið er til þeirra mörgu landa sem hafa haft útrýmingu veirunnar sem sóttvarnastefnu og lifa svo gott sem án takmarkana,“ segir hann.

Þrátt fyrir að Nýja-Sjáland sé oftast nefnt í þessum efnum þá vill Unnþór einnig benda á lönd eins og Taívan, Víetnam og Mongólíu. „Þá má líka líta til Ástralíu sem þrátt fyrir hafa aldrei haft útrýmingu veirunnar sem yfirlýst markmið hefur það þó sannarlega fylgt þeirri stefnu í verki. Síðustu 11 daga hefur ekkert innanlandssmit verið staðfest þrátt fyrir að þar búi 25 milljónir manns og einhver fylki hafi glímt við samfélagssmit í desember og janúar,“ segir hann.

„Það er því einfaldlega rangt að segja að veirufrítt samfélag sé óraunhæft þegar öðrum löndum hefur tekist það. Þrátt fyrir að öll þau lönd sem hafa útrýmt veirunni hafi fengið veiruna aftur inn í samfélagið er aðalatriðið það að þau hafa öll náð að útrýma henni á ný með snörum og markvissum aðgerðum.“

Árangur síðustu vikna er dæmi um það

Unnþór vitnar í læknirinn Eric Topol sem birti graf í síðastliðnum október sem sýndi nýgengi smita á hverja milljón íbúa í Ástralíu, Víetnam, Japan, Suður-Kóreu, Nýja-Sjálandi og Íslandi. „Við grafið skrifaði hann: „Þessi lönd brutu Covid á bak aftur, hrukku aftur í sama farið en öll nema eitt sigruðust aftur á faraldrinum.“ Þar átt hann við Ísland sem eina landið sem ekki sigraðist ekki á faraldrinum,“ segir Unnþór.

Þórólfur Guðnason hefur rætt aðgerðirnar í hinum löndunum og saðgi þá að þær væru mun harðari en hér á landi. Þá sagðist Þórólfur ekki vera viss um hvort vilji sé fyrir því á Íslandi. „Það er eflaust rétt metið að ekki sé vilji fyrir aðgerðum á borð við útgöngubanni, hvorki á Alþingi né hjá almenningi, en spyrja má hvort nokkur þörf sé á slíkum hörðum aðgerðum? Til að útrýma veirunni þarf einfaldlega að halda smitstuðlinum undir einum þar til smit hætta að greinast í ákveðið langan tíma,“ segir Unnþór.

„Við höfum ítrekað sýnt að það er hægt án verulega íþyngjandi takmarkana. Árangur síðustu vikna er dæmi um það auk þess sem okkur tókst líklega að útrýma veirunni síðasta sumar. Það er því ekkert lögmál að einungis sé hægt að útrýma veirunni með útgöngubanni eða álíka hörðum sóttvarnaaðgerðum.“

„Veirulaust samfélag er efnhagslega skynsamlegt“

Unnþór segir svo að síðustu mótrökin gegn samfélagi án veirunnar séu af efnahagslegum toga. Hann vitnar í grein sem birtist í tímaritinu Nature í lok nóvember í fyrra en í greininni er talað um að hugmyndin um útrýmingu veirunnar hafi ekki náð fótfestu hér á landi. Sagt er að það hafi verið vegna áhyggja um að án ferðaþjónustunnar yrði landið gjaldþrota. „Þau rök hafa augljóslega ekki haldið vatni því heimsfaraldurinn leiðir sjálfkrafa til þess að ferðamannaiðnaður er í lægð, óháð útrýmingu. Fyrir utan auðvitað að á Íslandi er krafa um fimm daga sóttkví við komuna til landsins sem gerir það að verkum að landamærin eru svo gott sem lokuð fyrir ferðamönnum,“ segir Unnþór.

„Hvað sem því líður þá er raunveruleikinn sá, þvert á móti framangreindri fullyrðingu, að veirulaust samfélag er efnhagslega skynsamlegt í miðjum heimsfaraldri. Með því útrýma veirunni og aflétta flest öllum takmörkunum geta lönd í það minnsta fengið efnahagslega innspýtingu með eðlilegri atvinnustarfsemi innanlands.“

Ferðamenn geta komið ef rétt er haldið á spilunum

Unnþór talar næst um ferðamennina en hann er á þeirri skoðun að það verði hægt að taka á móti ferðamönnum í sumar ef rétt er haldið á spilunum. „Fyrir það fyrsta er ferðaþjónustan mikilvæg og hún þarf á fyrirsjáanleika að halda. Í öðru lagi eru skilyrði þess að sleppa við sóttkví, það er farþegi frá grænu landi, neikvætt PCR próf og skimun á landamærum, líkleg til að skila góðum árangri þótt auðvitað sé hætta á að veiran sleppi í gegn,“ segir hann.

„Í þriðja lagi getum við gert ráð fyrir að 1. maí næstkomandi hafi í það minnsta markverður hluti þjóðarinnar fengið bólusetningu sem mun veita okkur einhverja vörn gegn veirunni. Í fjórða lagi er líklegt að veiran sé að einhverju leyti árstíðabundin sem gerir það að verkum að hún er aðeins auðveldari viðureignar að sumri til. Í fimmta lagi erum við með öflugt smitrakningarteymi sem mun geta brugðist við ef veiran fer aftur af stað. Hugmyndin um veirulaust samfélag þarf því ekki að stangast á við þá stefnu að taka á móti ferðamönnum í sumar ef rétt er haldið á spilunum.“

„Það verður að teljast ansi ólíklegt“

Nú er byrjað að bólusetja hér á Íslandi eins og í öðrum löndum úti um allan heim. „Spyrja má af hverju við ættum núna að stefna að útrýmingu veirunnar og veirulausu samfélagi. Þar sem við erum byrjuð að bólusetja áhættuhópa munum við þá ekki fljótlega geta slakað á hvort sem er?“ spyr Unnþór í pisttlinum. Hann minnir á að það sé mikil óvissa um afhendingu bóluefnisins. „Við vitum því ekki hvenær við verðum búin að bólusetja áhættuhópa,“ segir hann.

Þá bendir Unnþór á fleiri hluti sem benda til þess að það sé ekkert öruggt að lífið verði komið í eðlilegt horf fyrir sumarið þrátt fyrir að bóluefnið sé komið. „Til þess að geta slakað almennilega á samhliða því að lifa með veirunni myndum við fyrst þurfa að ná hinu margumrædda hjarðónæmi. Það verður að teljast ansi ólíklegt að það náist á fyrri helming þessa árs þótt það sé ekki útilokað. Þar að auki vitum ekki hvar endanlegur hjarðónæmisþröskuldur liggur, til dæmis gæti hann endað á að vera hærri en áður var talið vegna nýrra og meira smitandi afbrigða veirunnar.“

„Þá mun fólk vafalaust sýna meiri samstöðu“

Unnþór segir að það sé ekkert lögmál um að það þurfi virkilega harðar aðgerðir eins og útgöngubann til að útrýma veirunni. Hann segir að það megi vel vera að núgildandi aðgerðir dugi til að keyra veiruna í þrot. Þá bendir hann á að undanfarið sé búið að vera mikið skemmtanahald hér á landi og að lögreglan hafi áhyggjur af því að fólk sé að slaka of mikið á. Unnþór telur að hægt sé að koma í veg fyrir þetta með því að vekja athygli á „spikfeitri gulrót“, lífi án veirunnar.

„Mögulega vilja margir leyfa sér eitthvað núna ef ske kynni að önnur bylgja myndi skella á með tilheyrandi takmörkunum. Ef það liggur hins vegar skýrt fyrir að við ætlum að útrýma veirunni, og uppskera fyrir vikið þá spikfeitu gulrót sem er líf án sóttvarnaaðgerða, þá mun fólk vafalaust sýna meiri samstöðu og skerpa á sóttvörnum.“

„Talsvert líklegra til að skila okkur árangri“

Að lokum segir Unnþór að hann sé ekki að deila um góðan árangur heilbrigðisyfirvalda hér á landi. Þá segir hann að með pistlinum sé hann ekki að leggja til að stefnunni í sóttvarnaraðgerðum verði gjörbreytt. „Hér er einungis lagt til að ákvörðun sé tekin um að stefna að útrýmingu veirunnar og veirulausu samfélagi, mögulega smávægilegar breytingar á sóttvarnareglum og tilmælum, að tilslakanir taki mið af fyrirfram ákveðnum fjölda innanlandssmita eða öðrum mælikvörðum og að landamærin verði þétt eftir því sem kostur er. Í raun og veru ekki mjög róttækar breytingar. Fræðilega séð snýst þetta að taka skrefið frá bælingu (e. suppression) yfir í útrýmingu (e. elimination),“ segir hann.

„Það er varla hægt að ímynda sér annað en að heilbrigðisyfirvöld séu að vonast til þess að núgildandi stefna og takmarkanir dugi til að útrýma veirunni. Að veirulaust samfélag verði afleiðing sóttvarnareglna- og tilmæla þrátt fyrir að vera ekki yfirlýst markmið. Vel má vera að það gerist. Hins vegar er engum blöðum um það að fletta að ákvörðun og áætlun um útrýmingu veirunnar er talsvert líklegra til að skila okkur árangri en að bíða og vona.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Sigríður Andersen: Gott að flokkarnir standi sjálfir frammi fyrir skriffinnskunni sem þeir íþyngja atvinnulífinu og almenningi með

Sigríður Andersen: Gott að flokkarnir standi sjálfir frammi fyrir skriffinnskunni sem þeir íþyngja atvinnulífinu og almenningi með
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Þórður Snær um stóra herbergjamálið – „Skondnasta birtingarmynd yfirstandandi frekjukasts“

Þórður Snær um stóra herbergjamálið – „Skondnasta birtingarmynd yfirstandandi frekjukasts“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigríður Andersen: Stjórnmálin snúast orðið um skráningar og að haka í box – atvinnulífið fer ekki varhluta af því

Sigríður Andersen: Stjórnmálin snúast orðið um skráningar og að haka í box – atvinnulífið fer ekki varhluta af því
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Svarthöfði skrifar: Tilvistarkreppa sjálfstæðismanna – ráðast á Flokk fólksins

Svarthöfði skrifar: Tilvistarkreppa sjálfstæðismanna – ráðast á Flokk fólksins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Jón urðar yfir Ingu – „Verður hún þá búin að fremja fleiri afrek í þágu þjóðarinnar?“

Jón urðar yfir Ingu – „Verður hún þá búin að fremja fleiri afrek í þágu þjóðarinnar?“