Samkvæmt frétt The Guardian þá hvatti Xi til alþjóðlegrar samvinnu gegn efnahagsvandanum sem heimsfaraldurinn hefur haft í för með sér og sagði að ekki eigi að nota faraldurinn sem afsökun fyrir að hverfa frá alþjóðavæðingu og snúa til einangrunarstefnu.
Hann forðaðist að nefna Biden og Trump með nafni í þessari fyrstu ræðu sinni eftir forsetaskiptin í Bandaríkjunum en sagði skýrt og greinilega að Kína myndi ekki láta stjórna sér frá Washington. Hann sagði að það að viðhalda verndarstefnu eða hefja nýtt kalt stríð muni ýta undir klofning og jafnvel átök í heiminum.
Hann sagði að ekkert eitt ríki geti leyst alþjóðleg vandamál. Það verði að vera alþjóðleg samvinna til að leysa málin.
Biden hefur ekki gefið til kynna að hann hyggist breyta út af harðri stefnu Trump gagnvart Kína og mun fljótlega kynna „buy American“ stefnu sína til að örva bandaríska framleiðslu.