Ástæðan fyrir banninu er að grunur leikur á að kórónuveirusýnataka, sem boðið er upp á við brottför frá Dubai, sé ekki áreiðanleg. Nú þurfa þeir sem koma til Danmerkur að framvísa neikvæðri niðurstöðu úr kórónuveirusýnatöku sem má ekki vera meira en sólarhrings gömul.
Í tilkynningu frá samgönguráðuneytinu er haft eftir Engelbrecht að stökkbreytt afbrigði veirunnar hafi borist til Danmerkur í gegnum Dubai og því sé ekki hægt að sitja aðgerðalaus á hliðarlínunni. „Af þessum sökum verður allt farþegaflug til og frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum bannað í fimm daga á meðan málið verður rannsakað til fulls og tryggt að sýnatakan sé framkvæmd eins og gera á,“ er einnig haft eftir ráðherranum.
Utanríkisráðuneytinu barst „ábending“ sem vakti grunsemdir um að ekki væri allt með felldu hvað varðar sýnatökuna í Dubai. Ekki kemur nánar fram í tilkynningunni hvenær ábendingin barst eða hvers eðlis hún er nákvæmlega.
Töluverð fjölmiðlaumfjöllun hefur verið um ferðir Dana til Dubai að undanförnu en margir hafa farið þangað til að sóla sig. Þar þurfa ferðamenn ekki að fara í sóttkví þrátt fyrir að smitum hafi fjölgað mikið í landinu að undanförnu.
Í síðustu viku skýrði danska sóttvarnastofnunin, Statens Serum Institut, frá því að fyrsta tilfelli bráðsmitandi afbrigðis af veirunni, sem kennt er við Suður-Afríku, hefði greinst í Danmörku. Það bar danskur ferðamaður með sér frá Dubai.