fbpx
Fimmtudagur 18.júlí 2024
Pressan

Forsætisráðherra Danmerkur hefur miklar áhyggjur af kórónuveirufaraldrinum

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 18. janúar 2021 07:05

Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur miklar áhyggjur af kórónuveirufaraldrinum og þá aðallega B117 afbrigðinu sem einnig hefur verið nefnt „enska eða breska afbrigðið“. Þetta skrifaði hún á Facebook í gærkvöldi.

Smitum hefur fækkað mikið í Danmörku síðustu daga og virðast harðar sóttvarnaraðgerðir vera að skila árangri. Síðustu daga hafa greind smit verið undir 1.000 á sólarhring en voru komin upp í um 4.000 þegar verst lét. Innlögnum á sjúkrahús hefur þó ekki fækkað og er fjöldi innlagðra nokkuð stöðugur.

Hún skrifaði að Danir fái heldur ekki nægilega mikið af bóluefni til að geta sigraði í kapphlaupinu við veiruna. „Þrátt fyrir lækkandi smittölur þá sækir breska afbrigðið í sig veðrið og við fáum ekki nægilega mikið af bóluefnum til að geta unnið það kapphlaup. Þess vegna verða smittölurnar að fara enn lengra niður,“ skrifaði hún.

Staðfest hefur verið að 283 Danir eru smitaðir af B117 afbrigðinu en það er miklu meira smitandi en önnur afbrigði veirunnar.

https://www.facebook.com/mettefrederiksen.dk/posts/10158799914987719

Frederiksen hnýtti einnig í landa sína í færslunni: „Það er ekki til að bæta ástandið að lögreglan þurfti um helgina að leysa upp samkvæmi og að aftur sé farið að ræða að slaka á reglum um takmarkanir á heimsóknum á dvalarheimili,“ skrifaði hún. Hún sagði einnig að það megi búast við miklum þrýstingi á ríkisstjórnina á næstunni um að slaka á sóttvarnaraðgerðunum en það sé ekki hægt að svo stöddu, til þess sé staðan of alvarleg og hættan sem stafi af B117 afbrigðinu sé of mikil. Meðal þeirra sóttvarnarráðstafana sem gripið hefur verið til er, er að skólar eru lokaðir og nemendum kennt í fjarkennslu. Nær allar verslanir eru lokaðar, nema hvað matvöruverslanir, lyfjaverslanir, gleraugnabúðir og aðrar verslanir sem teljast selja nauðsynjavarning mega hafa opið. Veitingastaðir mega aðeins selja mat út úr húsi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 4 dögum

Örlög Golfstraumsins gætu ráðist í „reiptogi“

Örlög Golfstraumsins gætu ráðist í „reiptogi“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Það er farið að hægja á snúningi innri kjarna jarðarinnar – Það gæti breytt daglengdinni

Það er farið að hægja á snúningi innri kjarna jarðarinnar – Það gæti breytt daglengdinni
Pressan
Fyrir 5 dögum

Baba Vanga spáði fyrir um heimsendi – Hefst á næsta ári

Baba Vanga spáði fyrir um heimsendi – Hefst á næsta ári
Pressan
Fyrir 5 dögum

Skammbyssur sem Napóleon ætlaði að skjóta sig með seldust fyrir 255 milljónir

Skammbyssur sem Napóleon ætlaði að skjóta sig með seldust fyrir 255 milljónir
Pressan
Fyrir 6 dögum

Sagðar hafa drepið „sykurpabbann“ og skorið þumal af til að komast í peningana

Sagðar hafa drepið „sykurpabbann“ og skorið þumal af til að komast í peningana
Pressan
Fyrir 6 dögum

Hyggjast verðlauna aðflutta með milljónum

Hyggjast verðlauna aðflutta með milljónum
Pressan
Fyrir 6 dögum

Týndi farsímanum sínum – Kostaði hann 11 ára fangelsi

Týndi farsímanum sínum – Kostaði hann 11 ára fangelsi
Pressan
Fyrir 1 viku

Banki þvingaði fólk til að kaupa óþarfa tryggingar, stofnaði yfirdátt í þeirra óþökk, færðu til peninga og sendu þeim óumbeðin greiðslukort

Banki þvingaði fólk til að kaupa óþarfa tryggingar, stofnaði yfirdátt í þeirra óþökk, færðu til peninga og sendu þeim óumbeðin greiðslukort