Þeir héldu fréttamannafund á þriðjudagskvöldið og ræddu um rannsókn málsins. Frá því að árásin var gerð hafa FBI og ríkissaksóknarinn hafið rannsókn á tengslum 170 manns við árásina og 70 hafa þegar verið ákærðir. Lögreglan hefur fengið rúmlega 100.000 vísbendingar, ljósmyndir og myndbandsupptökur frá almenningi. En allt þetta er bara upphafið á rannsókninni.
„Ég held að umfang þessarar rannsóknar sé fordæmalaust, ekki bara í sögu FBI, heldur einnig í sögu dómsmálaráðuneytisins,“ sagði Sherwin.
Fram kom að þinghúsið og nánast allt svæðið í kringum það sé hluti af brotavettvanginum. Rannsókninni lýkur ekki á næstunni og munu margir mánuðir líða þar til henni verður lokið.
Sherwin sagði að um mörg brot væri að ræða sem væru til rannsóknar, allt frá póstþjófnaði, árásum á lögreglumenn, þjófnaði á ríkisleyndarmálum til morða og manndrápa. „Þetta nær yfir óskiljanlega margt,“ sagði Sherwin.
FBI er nú að rannsaka mörg mál er tengjast samsæri og hvatningu til uppreisnar. Allt að 20 ára fangelsi liggur við slíkum brotum. „Ég held að fólki bregði yfir því sem gerðist þarna inni,“ sagði Sherwin um atburðina í þinghúsinu.