Þetta kemur fram í tölum frá Johns Hopkins háskólanum frá í nótt.
Samkvæmt tölum frá Covid Tracking Project liggja um 131.000 COVID-19-sjúklingar nú á bandarískum sjúkrahúsum.
Vegna ástandsins innanlands sem utan hafa bandarísk stjórnvöld ákveðið að frá og með 26. janúar verði allir flugfarþegar, sem koma til landsins, að framvísa neikvæðri niðurstöðu úr COVID-19 sýnatöku. Þetta á einnig við um bandaríska ríkisborgara. Yfirvöld vonast einnig til að ná stjórn á faraldrinum með umfangsmiklum bólusetningum. Nú þegar er búið að bólusetja 9,3 milljónir landsmanna með fyrri skammti bóluefnis. Alex Azar, heilbrigðisráðherra, vonast til að hægt verði auka hraða bólusetningarinnar og bólusetja mun fleiri daglega en nú er gert. Hann hefur hvatt ríkin til að bjóða öllum eldri en 65 ára upp á bólusetningu núna.
Stjórnvöld hafa áhyggjur af útbreiðslu hins svokallaða „enska afbrigðis“ en það hefur nú greinst í tíu ríkjum. Það er mun meira smitandi en önnur afbrigði og því óttast yfirvöld að smitum muni fjölga mikið á næstunni.
Í heildina hafa rúmlega 380.000 látist af völdum COVID-19 í Bandaríkjunum.