Nýjar sóttvarnarreglur taka gildi á miðvikudag í næstu viku ef fram heldur sem horfir, Svandís Svavarsdóttir kynnti nýtt regluverk sitt í dag eftir tillögur frá Þórólfi Guðnasyni. Það er þó háð því að engar breytingar verði á COVID19 faraldrinum.
Íþróttaáhugafólk fagnar því að grænt ljós er komið á keppni, ekkert er því til fyrirstöðu að leikir hefjist því strax næsta miðvikudag. Blátt bann hefur verið á keppnisíþróttir frá því í október á síðasta ári.
„Íþróttir verða heimilaðar, líka keppni. Án áhorfenda, auðvitað,“ sagði Svandís við Stöð2 í dag og vekja þessi ummæli hennar talsverða athygli.
Svandís segir að auðvitað séu áhorfendur bannaðir og þetta á íþróttaáhugafólk erfitt með að skilja. Á sama tíma geta 200 manns komið í sama salinn í leikhúsi og horft á sýningu. „Sitjandi gestir í sal mega vera allt að 100 fullorðnir og 100 börn fædd 2005 og síðar,“ segir í tillögum sóttvarnalæknis, Þórólfs Guðnasonar sem birtar voru í dag.
Frábært að opnað sé á keppnisíþróttir en af hverju mega vera 200 áhorfendur í leikhúsi en ekki íþróttahúsi?
— Daníel Rúnarsson (@danielrunars) January 8, 2021
„Frábært að opnað sé á keppnisíþróttir en af hverju mega vera 200 áhorfendur í leikhúsi en ekki íþróttahúsi?,“ skrifar Daníel Rúnarsson, íþróttaáhugamaður og virtur ljósmyndari um málið
Davíð Eldur tekur í sama streng og segir samhengið í þessari ákvörðun ekki mikið. „Vegna þess að leikhúsgestir eru mikilvægari heldur en áhorfendur á leikjum. Þetta er bara ákvörðun. Enn eitt skiptið sem hún er tekin gegn íþróttum í þessum faraldri,“ skrifar Davíð um málið
Guðmundur Karl Sigurdórsson, ritstjóri Sunnlenska.is hefur sína kenningu um málið. „Að öllu gamni slepptu þá held ég að þetta snúist um númeruð sæti. Veit reyndar ekki hverju þau breyta,“ skrifar Guðmundur.
Þrátt fyrir þetta fagnar íþróttafólk og áhugafólk um íþróttir því að hægt verði spila íþróttir aftur og má búast við veislu í sjónvarpinu, sökum þess að fólk fær ekki að mæta á völlinn.
Hvorki Þórólfur Guðnason né Svandís Svavarsdóttir svöruðu símtali blaðamanna við vinnslu fréttarinnar.
Dag er tekið að lengja, þjóðin má byrja að hreyfa sig í sameiningu, bætist í bólefnabirgðirnar og íþróttir eru á næsta leiti 👏🥳 pic.twitter.com/J0j9RULTFk
— Kjartan Atli (@kjartansson4) January 8, 2021