fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Pressan

Hrollvekjandi spá Nostradamusar fyrir 2021 – Árið í ár hátíð ein í samanburði

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 29. desember 2020 05:26

Nostradamus. Mynd:Wikimedia Commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er ekki bjart fram undan á næsta ári ef marka má spá hins þekkta spámanns Nostradamusar sem var uppi á sextándu öld. Margir telja að hann hafi búið yfir mikilli spádómsgáfu og hafi spáð rétt fyrir um eitt og annað sem hefur gerst í gegnum aldirnar.

Miðað við túlkanir á spádómum hans þá mun það meðal annars bera til tíðinda á næsta ári að örflögur verða græddar í heila hermanna en það er ekki það versta þegar upp verður staðið. Hann spáði einnig að sögn fyrir um að loftsteinar, sólstormar og hungursneyð muni fara illa með mannkynið.

Sjálfskipaðir sérfræðingar í spádómum hans segja að hann hafi einnig spáð að mjög öflugur jarðskjálfti ríði yfir Kaliforníu og að rússneskir vísindamenn þrói veiru sem breyti fólki í uppvakninga. Þessi veira muni að lokum gera út af við mannkynið.

Áður hefur því verið haldið fram að Nostradamus hafi spáð fyrir um valdatöku Adolf Hitler í Þýskalandi, hrylling síðari heimsstyrjaldarinnar og smíði kjarnorkusprengjunnar.  Hann er einnig sagður hafa séð morðið á John F. Kennedy fyrir og hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin í september 2001.

Mirror segir að samkvæmt því sem nú er lesið úr spádómum hans muni tækniþróunin ná nýjum hæðum á næsta ári þegar örflögur verði græddar í heila hermanna. Einnig er hann sagður hafa spáð fyrir um að Rússar þrói vopn, sem inniheldur veiru, sem breytir fólki í uppvakninga og útrýmir mannkyninu. Öflugir sólstormar koma einnig við sögu og er hann sagður hafa spáð því að þeir valdi miklu tjóni á jörðinni og valdi miklum fólksflutningum og stríðsátökum. Einnig mun hungursneyð herja á mannkynið. En þar með eru hörmungar næsta árs ekki alveg upptaldar því hann er einnig sagður hafa spáð því að loftsteinn skelli á jörðinni og að öflugur jarðskjálfti ríði yfir Kaliforníu þann 25. nóvember 2021.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Það er farið að hægja á snúningi innri kjarna jarðarinnar – Það gæti breytt daglengdinni

Það er farið að hægja á snúningi innri kjarna jarðarinnar – Það gæti breytt daglengdinni
Pressan
Fyrir 3 dögum

Er sársaukaþröskuldur kvenna hærri en karla?

Er sársaukaþröskuldur kvenna hærri en karla?
Pressan
Fyrir 4 dögum

Skammbyssur sem Napóleon ætlaði að skjóta sig með seldust fyrir 255 milljónir

Skammbyssur sem Napóleon ætlaði að skjóta sig með seldust fyrir 255 milljónir
Pressan
Fyrir 4 dögum

Var á dauðaganginum í 45 ár – Vonast nú til að hreinsa nafn sitt

Var á dauðaganginum í 45 ár – Vonast nú til að hreinsa nafn sitt
Pressan
Fyrir 5 dögum

Hyggjast verðlauna aðflutta með milljónum

Hyggjast verðlauna aðflutta með milljónum
Pressan
Fyrir 5 dögum

Ítalskur bær neyðist til að vísa ferðamönnum á brott vegna vatnsskorts

Ítalskur bær neyðist til að vísa ferðamönnum á brott vegna vatnsskorts
Pressan
Fyrir 6 dögum

Banki þvingaði fólk til að kaupa óþarfa tryggingar, stofnaði yfirdátt í þeirra óþökk, færðu til peninga og sendu þeim óumbeðin greiðslukort

Banki þvingaði fólk til að kaupa óþarfa tryggingar, stofnaði yfirdátt í þeirra óþökk, færðu til peninga og sendu þeim óumbeðin greiðslukort
Pressan
Fyrir 6 dögum

Prestur barði eiginkonu sína fyrir að vera heppin

Prestur barði eiginkonu sína fyrir að vera heppin