News.com.au skýrir frá þessu. Fram kemur að í færslunni hafi fjölskyldufaðirinn, Kyle Milliken, sakað eiginkonu sína um að halda fram hjá honum. Hann skrifaði meðal annars: „Börnin mín eru það eina sem skiptir mig máli, konur koma og fara. Ef hún er ekki ánægð, getur þú ekki gert hana ánægða,“ skrifaði hann og bætti við: „Ég get ekki sagt annað en að ég elska syni mínu af öllu hjarta. Allt sem ég hef gert á fullorðinsárum mínum hefur verið fyrir þá, þannig að þeir myndu öðlast betra líf en ég bjó við þegar ég var að vaxa úr grasi.“
Lögreglan telur að eftir að Kyle hafði skrifað þetta hafi hann myrt eiginkonu sína og syni og að lokum tekið eigið líf. Synirnir, Kyle og Kychohn, voru 13 og 8 ára, að sögn News.com.au.