Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag. Blaðið segir að forsætisráðuneytið hafi varist allra frétta af málinu en blaðið segist hafa heimildir fyrir að Katrín hafi meðal annars átt fjarfund með Angelu Hwang, framkvæmdastjóra hjá Pfizer, í gær vegna málsins. Segir blaðið einnig að frekari fundahöld séu fyrirhuguð, þar á meðal með stjórnendum Moderna.
Katrín ræddi við Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar ESB í gær, um málið. Forsetinn fullvissaði Katrínu um að fyrstu bóluefnisskammtarnir muni berast hingað í tæka tíð í samræmi við samninga.
Lyfjastofnun Evrópu veitti í gær leyfi til notkunar bóluefnisins frá Pfizer og í gærkvöldi tilkynnti Lyfjastofnun Íslands að hún hefði veitt bóluefninu skilyrt markaðsleyfi.
Síðustu daga hefur verið töluverð umræða um fyrirhugaðar bólusetningar hér á landi og hafa heilbrigðisráðherra og sóttvarnalæknir ekki verið á einu máli varðandi þær. Bloomberg fréttastofan skýrði síðan frá því um helgina að Íslendingar hefðu tryggt sé miklu færri skammta af bóluefni en aðrar Evrópuþjóðir miðað við höfðatölu. Heilbrigðisráðuneytið vísaði þessu á bug og sagði að Íslandi hafi verið tryggt mikið magn af bóluefni frá AstraZeneca og Pfizer. Ekkert kom þó fram um hvenær þetta bóluefni komi til landsins.
Morgunblaðið bendir á að í samtali Katrínar við von der Leyen hafi sú síðarnefnda aðeins rætt um fyrstu skammta bóluefnisins en ekki framhaldið og því er ekkert fast í hendi hvað varðar tímalínuna í framhaldinu. Blaðið segir að eftir því sem næst verði komist sé ekkert fast í hendi nema að hingað eigi að berast 2.950 skammtar á viku næstu 13 vikur.
Blaðið segir að farið sé að hitna undir Svandísi Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra, vegna málsins en aukinnar gagnrýni hefur gætt í hennar garð síðustu daga, aðallega vegna misvísandi upplýsinga um bólusetningu. Morgunblaðið ræddi við þingmenn, bæði í stjórn og stjórnarandstöðu, sem sögðust telja að frumkvæði forsætisráðherra í málinu sé merki um að efasemda gæti víða.