Eins og DV skýrði frá 19. nóvember lýsti lögreglan eftir henni og leitaði hennar. Fjórum dögum eftir að tilkynnt var um hvarf hennar fannst bíll hennar við Bellahøj. 16. nóvember dró til tíðinda þegar lögreglan hóf umfangsmikla vettvangsrannsókn við heimili hennar. Síðdegis þann dag var tilkynnt að 44 ára karlmaður hefði verið handtekinn vegna málsins. Hann er grunaður um að hafa orðið Maria að bana.
Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald og bann var lagt við að skýrt væri opinberlega frá nafni hans eða öðru sem gæti varpað ljósi á hver hann er. Eins og DV skýrði frá í nóvember þá mátti lesa úr umfjöllun danskra fjölmiðla að um eiginmann Mariu væri að ræða. Það reyndist rétt en í síðustu viku var bannið við nafnbirtingunni fellt úr gildi að kröfu lögreglunnar. Þá kom í ljós að maðurinn er Thomas Gotthard, eiginmaður Mariu. Hann er sóknarprestur í Ansgarkirken á Sjálandi.
Lögreglan krafðist þess að bannið yrði fellt úr gildi til að hún gæti leitað aðstoðar almennings. Lík Mariu hefur ekki fundist og Thomas hefur ekki verið samvinnuþýður og neitar að vera viðriðinn hvarf hennar. Lögreglan hefur því biðlað til almennings um upplýsingar um ferðir hans í kringum hvarf Mariu.
Lögreglan hefur getað kortlagt ferðir hans að hluta út frá myndum úr eftirlitsmyndavélum hér og þar en enn eru eyður í kortlagningunni.