,,Þetta er alveg ótrúlegt blíða dag eftir dag og þess vegna er allt í lagi að fara með stöngina, eitt og eitt kast er flott núna,“sagði veiðimaður sem ekki hefur ennþá sett stöngina uppá hillu og veiðir tölvert í þessu veðurfari.
,,Fór í Hólmsá hérna við Gunnarshólma í vikunni og tók nokkur köst, fiskurinn var tregur en ég náði tveimur og sleppti þeim aftur í Mýsluna. Fátt er betra 6 stiga hiti og einn og einn fiskur að vaka og nokkir að taka fluguna,“ sagði veiðimaður sem var að kaupa flugustöng handa konunni þegar hann fór að ræða veiðimálin.
Annar sem við ræddum við sagðist hafa farið nokkrum sinnum að veiða síðustu vikurnar. Hann hefði núna síðustu árin farið oft undir jólin að veiða og einu sinni á aðfangadag, þá var reyndar 8 stiga hiti og fiskurinn að taka. Svona er þetta allt að breyst í heiminum.
Mynd. Frábært veður hefur verið síðustu vikurnar og gott að stunda ýmsa útivist. Mynd GB