fbpx
Laugardagur 14.desember 2024
Fókus

Húsráðin á aðventunni og í jólaboðinu

Fókus
Þriðjudaginn 22. desember 2020 20:00

Jólaverslunin getur verið í hættu. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er alltaf gott að hafa nokkur húsráð að grípa til ef eitthvað bjátar á.

Hvort sem sósan misheppnast eða það kemur blettur í skyrtuna, þá eru hér ráð sem gætu hugsanlega reddað stemmingunni.

Lagaðu brotinn varalit.

Varaliturinn brotinn

Ef varaliturinn brotnar í tvennt þá geturðu notað kveikjara til að „líma“ hann saman aftur. Þú notar kveikjarann til að hita báða enda svo þeir séu smá „bráðnir“ og þá er lítið mál að setja varalitinn aftur saman. Það má einnig nota hárblásara til að hita varalitinn. Ráð þetta dugar einnig á meikstifti.

Rauðvínsblettur

Notaðu hvítvín og matarsóda á rauðvínsbletti. Byrjaðu á því að hella hvítvíni yfir blettinn og dreifðu síðan matarsóda yfir hann. Láttu vera í 2-3 tíma og þvoðu síðan flíkina.

Mynd/Getty

Fitublettur

Það er leikur einn að ná fitublettum úr fötum. Prófaðu að nota hvíta krít, nuddaðu krítinni á blettinn og krítarduftið ætti að sjúga í sig fituna þannig að bletturinn hverfi í þvotti. Það er líka hægt að nota óblandaðan uppþvottalög og láta sápuna liggja á blettinum í nokkra klukkutíma áður en þú þværð flíkina. Sé bletturinn mjög erfiður er gott að nudda hann með sápunni og bursta fyrst. Passið að efnið þoli burstunina. Þú gætir þurft að endurtaka leikinn. Ef bletturinn er í flík sem nota á strax má þrífa blettinn með vatni og sápu og þurrka með hárblásara.

Mynd/Getty

Sléttujárn sem straujárn

Þegar þú straujar þá er vel hægt að nota sléttujárn til að ná betur á erfiðustu staðina. Til dæmis í kringum tölur og kraga.

Súpan of bragðmikil

Börn eru með mun næmara bragðskyn en fullorðnir, það getur verið sniðugt að bæta við klaka í súpuna þeirra. Sem bæði kælir súpuna og dregur úr bragðinu. Ef þú vilt ekki að súpan verði vatnskennd þá er hægt að frysta rjóma eða mjólk í klakaboxi og bæta út í súpuskál barnsins.

Svona geturðu gengið frá jólaljósunum.

Frágangur jólaljósanna

Þó að það geti verið auðvelt að taka niður jólaljósin, henda þeim ofan í kassa og ekki þurfa að hafa áhyggjur af þeim fyrr en á næsta ári, þá ertu að gera framtíðar-þér mikinn greiða með því að ganga snyrtilega frá þeim. Taktu pappa og klipptu hann eins og sjá má á meðfylgjandi mynd eða notaðu innvolsið úr eldhúsrúllu og rúllaðu seríunni upp á.

Svona geturðu gengið frá jólaljósunum.. Mynd/YouTube

Brennd sósa

Ef sósan brennur við í pottinum þá er óþarfi að gefast upp. Þú getur hellt sósunni yfir í annan pott og haldið áfram að sjóða hana þar. Þegar því er lokið þá ættir þú að bæta smá sykri út í sósuna. Hann hjálpar til við að dempa brunabragðið.

Skötulykt

Ef þú ætlar að elda skötu á Þorláksmessu en vilt ekki að allt heimilið lykti eins og skata á aðfangadag, prófaðu að nota edik. Bómull er bleytt með ediki og síðan komið fyrir milli potts og pottloks. Bómullin á ekki að fara ofan í vatnið þegar það sýður, heldur að hanga ofan í pottinum án þess að snerta vatnið. Þannig dregur bómullin í sig lyktina. Þú gætir þurf að skipta henni út við suðuna til að hún mettist ekki. Svo virkar alltaf vel að sjóða herlegheitin úti á svölum á prímus.

Settu kartöflur í salta sósu.

Sölt sósa

Er sósan of sölt og þú hefur ekki tíma, né hráefnin, til að búa til nýja sósu frá grunni? Prófaðu að bæta hráum afhýddum kartöflum í teningum út í sósuna og láta sjóða með um stund. Þegar kartöflurnar hafa þjónað tilgangi sínum eru þær fjarlægðar úr sósunni eða súpunni. Ef hún er ekki mjög sölt virkar oft að bæta við rjóma ef um rjómasósu er að ræða.

Þurrt kjöt

Ef þú ætlar að elda frosið kjöt er betra að það þiðni við stofuhita frekar en í ísskáp. Því hraðar sem það þiðnar því minni líkur eru á að ískristallar myndist í kjötinu sem geta eyðilagt frumurnar í því. Það veldur því að kjötið verður þurrt.

Sniðug leið til að geyma límbandið.

Innpökkunarráð

Ertu í tómu tjóni að reyna að kroppa endann á límbandinu í hvert einasta skipti sem þú þarft að nota það? Prófaðu að nota brauðklemmu, eða jafnvel krónupening. Þú setur brauðklemmuna á endann á límbandinu og verður aldrei aftur í basli með að pakka inn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

„Ógeðslegt“ með hverri kærastinn er að halda framhjá – „Hún er sextug en klæðir sig eins og hún sé tvítug“

„Ógeðslegt“ með hverri kærastinn er að halda framhjá – „Hún er sextug en klæðir sig eins og hún sé tvítug“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Læknar sögðu Anton Bjarka að hafa engar áhyggjur af góðkynja æxlinu – Fann fyrir reiði þegar það kom í ljós að það væri illkynja og ágengt

Læknar sögðu Anton Bjarka að hafa engar áhyggjur af góðkynja æxlinu – Fann fyrir reiði þegar það kom í ljós að það væri illkynja og ágengt
Fókus
Fyrir 2 dögum

Mun Karl Bretakonungur stíga til hliðar um jólin?

Mun Karl Bretakonungur stíga til hliðar um jólin?
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekkirðu fólkið? – Mexíkósk kona leitar upplýsinga um fólkið sem faðir hennar umgekkst sem skiptinemi á Íslandi fyrir hálfri öld

Þekkirðu fólkið? – Mexíkósk kona leitar upplýsinga um fólkið sem faðir hennar umgekkst sem skiptinemi á Íslandi fyrir hálfri öld
Fókus
Fyrir 4 dögum

Raunveruleikastjarna birti sláandi mynd – Hefur nánast eytt aleigunni að komast til botns í þessu

Raunveruleikastjarna birti sláandi mynd – Hefur nánast eytt aleigunni að komast til botns í þessu
Fókus
Fyrir 4 dögum

Elísabet Reynis um Ozempic – „Mitt svar er einfalt og hreint NEI!“

Elísabet Reynis um Ozempic – „Mitt svar er einfalt og hreint NEI!“