The Guardian skýrir frá þessu. Fimmtungur allrar bómullar heimsins kemur frá Xinjiang. Það var Center for Global Policy sem gerði rannsóknina. Í henni kemur fram að marktækar vísbendingar séu um að bómullin sé „lituð“ af mannréttindabrotum þar sem fólk úr minnihlutahópum Úígúra múslima og öðrum múslimahópum sé þvingað til starfa.
Bandaríkin settu hömlur á innflutning bómullar frá Xinjiang fyrr á árinu og viðskiptaþvinganir á fyrirtæki sem er stýrt af Xinjiang Production and Construction Corps sem stýrir þriðjungi bómullarframleiðslunnar í héraðinu. Ástæðan fyrir þessum aðgerðum eru áhyggjur af stöðu mannréttindamála í héraðinu.