Á kosningafundi í Atlanta sagði hann að hætta sé á að pólitísk stefna hans lendi í mótvindi ef Demókratar ná ekki meirihluta í öldungadeildinni. „Eruð þið reiðubúin til að kjósa tvo þingmenn sem vita hvernig á að segja „já“ en ekki bara „nei“?“ spurði Biden fundargesti.
Hann lagði áherslu á að Bandaríkin þurfi öldungadeild þar sem Demókratar eru í meirihluta ef árangur á að nást í baráttunni við heimsfaraldur kórónuveirunnar, loftslagsbreytingar og kynþáttamismunun.
Demókratar verða að fá bæði þingsæti Georgíu til að tryggja sér meirihluta í öldungadeildinni en þeir eru nú þegar með meirihluta í fulltrúadeildinni. Ef þeir ná meirihluta í öldungadeildinni getur Biden komið stefnumálum sínum í framkvæmd á mun auðveldari hátt.
En Repúblikanar þurfa bara að sigra í kosningunni um annað sætið til að halda meirihluta sínum í deildinni en ef svo fer geta þeir komið í veg fyrir að stefnumál Biden nái fram að ganga.