fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Eyjan

Engar breytingar í sóttvarnaraðgerðum en til skoðunar að slaka á landsbyggðinni

Erla Dóra Magnúsdóttir
Þriðjudaginn 1. desember 2020 11:48

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. Mynd: Stjórnarráð

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, hefur ákveðið að framlengja gildandi reglugerð um takmarkanir á samkomum og skólastarfi til 9. desember. Því eru engar breytingar væntanlegar fyrr en í fyrsta lagi eftir rúma viku.

Þetta er í samræmi við tillögur Þórólfs Guðnasonar, sóttvarnarlæknis í ljósi þess hvernig faraldurinn hefur þróast undanfarna viku.

Þórólfur hafði búist við að hægt væri að hefja varfærnar tilslakanir strax á morgun, en svo kom bakslag í faraldurinn og þær hugmyndir voru fljótt teknar af borðinu.

„Fram kemur hjá sóttvarnarlækni að undanfarið hafi orðið breytingar á faraldrinum. Upp hafi komið hópsýkingar og smitum fjölgað. Þá virðist fjöldi þeirra sem greinast utan sóttkvíar stefna í línulegan vöxt og hugsanlegan veldisvöxt segir sóttvarnarlæknir,“ segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. 

Hins vegar kemur einnig fram að endurskoða eigi sóttvarnarráðstafanir þegar í stað og verður meðal annars tekið til skoðunar hvort rétt sé að gera tilslakanir á landsbyggðinni frekar en á höfuðborgarsvæðinu þar sem flest smit eru að greinast.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson: VG út og Samfylking inn eða hrein vinstri stjórn nema miðjuflokkarnir bæti stöðu sína

Þorsteinn Pálsson: VG út og Samfylking inn eða hrein vinstri stjórn nema miðjuflokkarnir bæti stöðu sína
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Straumfall til vinstri í sjö ár

Þorsteinn Pálsson skrifar: Straumfall til vinstri í sjö ár
Eyjan
Fyrir 1 viku

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Forsætisráðherra Grænlands heimsótti íslensku gullvinnsluna

Forsætisráðherra Grænlands heimsótti íslensku gullvinnsluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigrún og Andrea í framkvæmdastjórn Coca-Cola á Íslandi

Sigrún og Andrea í framkvæmdastjórn Coca-Cola á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lífskjör: Kaupmáttur á Íslandi mun minni en hjá nágrannaþjóðum – þriðjungi meiri í Færeyjum

Lífskjör: Kaupmáttur á Íslandi mun minni en hjá nágrannaþjóðum – þriðjungi meiri í Færeyjum
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Guðlaugur Þór hefur miklar efasemdir um fyrirhugaða þéttingu byggðar í Grafarvogi

Guðlaugur Þór hefur miklar efasemdir um fyrirhugaða þéttingu byggðar í Grafarvogi