fbpx
Fimmtudagur 27.febrúar 2025
Fréttir

Fagnar náðun fanga

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 30. nóvember 2020 15:44

Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Afstaða, félag fanga á Íslandi, fagnar þeirri ákvörðun dómsmálaráðherra að náða nokkra fanga sem beðið hafa lengi eftir afplánun. Níu manns verða náðaðir en allir eiga sameiginlegt að hafa beðið lengi eftir afplánun. Fjórir af þeim náðuðu hafa gerst sekir um auðgunarbrot, skjalafals eða brot gegn vopnalögum. Fimm höfðu framið umferðarlagabrot. (Sjá vef RÚV)

Afstaða hefur sent frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu um málið:

„Afstaða fagnar því að dómsmálaráðherra hefur brugðist við ástandi á fangelsismálum og hinum löngu biðlistum með því að náða þá sem hafa beðið lengi eftir afplánun. Um er að ræða einstaklinga sem hafa verið á boðunarlista lengur en í þrjú ár. Afstaða armar það hins vegar að ráðherra og starfshópur sá sem skipaður hefur verið um málið ætli sér að mismuna dæmdum mönnum á grundvelli brotaflokka. Ráðherra og umræddur starfshópur ætla þannig að fella eigin dóm um það hvaða afbrot eða afbrotamenn eiga möguleika á náðun og hverjir ekki. Matið verður þar með huglægt og líklega ómálefnalegt.

Hafi einstaklingar á annað borð beðið afplánunar lengur en í þrjú ár má ætla að það hafi ekki verið knýjandi þörf til þess að hneppa þá í fangelsi. En hin rúmlega þriggja ára bið er þó fangavist í sjálfu sér þar sem viðkomandi getur ekki undirbúið framtíð sína eða tekist á hendur skuldbindingar í hinum samfélagslega lífi. Brotaflokkur hefur ekkert með það að gera. Færa má rök fyrir því að minni hætta sé á því að veita einstaklingum með alvarlegra brot náðun er einstaklingum í örðum brotaflokkum.

Náðun í þessu tilliti skyldi byggja á hagsmunum almennings jafnt sem hagsmunum sakamanna. Hún skyldi ekki byggja á ótta fangelsisyfirvalda við að beita dæmda menn jafnræði óháð brotaflokkum. Sömu sjónarmið eiga við um reynslulausn. Afstaða þekkir ekkert ríki sem mismunar dæmdum mönnum og föngum með þeim hætti sem gert er á Íslandi þegar kemur að losun úr fangavist. Brotaflokkur ræður ekki ferðinni á hinum Norðurlöndunum. Reyndar hefur Mannréttindadómstóll Evrópu hafnað því að ómálefnaleg sjónarmið á við þyngd refsingar geti komið til skoðunar við ákvörðun um losunartíma.

Það er löngu tímabært að íslensk fangelsisyfirvöld byggi losun úr fangelsum eð niðurfellingu fangavistar á raunverulegu mati á því hversu örugg og farsæl sú losun getur orðið. Því er grundvallarskilyrði að byggja á áhættumati í hverju tilviki og líkum á því að viðkomandi valdi samfélaginu skaða á ný.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Ívar Orri kemur til dyranna eins og hann er klæddur – „Ef þú ert ekki sterkur þá ertu aumur“

Ívar Orri kemur til dyranna eins og hann er klæddur – „Ef þú ert ekki sterkur þá ertu aumur“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Vandræðalegt fyrir Elon Musk – Útreikningar DOGE algjört bull

Vandræðalegt fyrir Elon Musk – Útreikningar DOGE algjört bull
Fréttir
Í gær

Ólafur segir marga misnota veikindaréttinn: „Upp hafa komið hreint ótrúleg mál“

Ólafur segir marga misnota veikindaréttinn: „Upp hafa komið hreint ótrúleg mál“
Fréttir
Í gær

Kona sem þvinguð var í vændi þarf að sitja í íslensku fangelsi

Kona sem þvinguð var í vændi þarf að sitja í íslensku fangelsi
Fréttir
Í gær

Ferðamaður á Íslandi fékk afar dularfulla heimsókn – „Hefur einhver upplifað eitthvað svona?“

Ferðamaður á Íslandi fékk afar dularfulla heimsókn – „Hefur einhver upplifað eitthvað svona?“
Fréttir
Í gær

Sjáðu myndbandið sem Trump birti og er að gera allt brjálað

Sjáðu myndbandið sem Trump birti og er að gera allt brjálað
Fréttir
Í gær

Kjarasamningar loksins í höfn og verkföllum aflýst

Kjarasamningar loksins í höfn og verkföllum aflýst
Fréttir
Í gær

Trump hyggst selja ríkum útlendingum leyfi til að starfa og búa í Bandaríkjunum – Gullkortið mun kosta um 700 milljónir

Trump hyggst selja ríkum útlendingum leyfi til að starfa og búa í Bandaríkjunum – Gullkortið mun kosta um 700 milljónir