Þessar agnir berast meðal annars frá ökutækjum, skipum, orkuframleiðslu, iðnaði og kamínum. Þær geta borist djúpt niður í lungun og þannig valið bæði lungna- og hjartasjúkdómum.
Þrátt fyrir að tölurnar séu háar þá er rétt að hafa í huga að þær hafa batnað. 2009 létust 477.000 manns í álfunni af völdum loftmengunar. Í fréttatilkynningu frá Evrópsku umhverfisstofnuninni er haft eftir Hans Bruyninckx, forstjóra hennar, að góðu fréttirnar séu að loftgæðin fari batnandi vegna þeirra aðgerða sem gripið hefur verið til en þó sé fjöldi dauðsfalla of mikill. Fylgst er með magni agna í loftinu með mælingum á 4.000 stöðum í Evrópu. Ástandið er verst á Ítalíu, Póllandi, Tékklandi, Króatíu, Búlgaríu og Rúmeníu.