Forsvarsmenn Kringlunnar segja fréttir af kórónuveirusmiti starfsfólks í Kringlunni vera ranga og hafa af því tilefni beðið fyrir birtingu eftirfarandi fréttatilkynningar:
„Í ljósi fréttaflutnings af meintu kórónuveirusmiti í verslunarmiðstöð Kringlunnar vill Kringlan koma eftirfarandi tilkynningu á framfæri:
Engin smit hjá starfsfólki í Kringlunni
Forsvarsmönnum Kringlunnar er ekki kunnugt um að nýleg smit hafi komið upp á meðal starfsfólks verslana eða veitingastaða Kringlunnar og hefur almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra staðfest það.
Rétt er að fram komi að sóttvarnir eru í hæsta forgangi í verslunarmiðstöðinni og reglum um sóttvarnir hefur verið fylgt í hvívetna.
Kringlan er öruggur staður til að versla á – heimsendingar eru þó einnig í boði Nú fer í hönd tími jólainnkaupa og leggur Kringlan mikla áherslu á góðan undirbúning viðskiptavina til að auðvelt verði að sinna innkaupum og hlýta um leið öllum gildandi takmörkunum. Á kringlan.is er hægt að kynna sér vöruúrval verslana og jafnvel klára kaup. Verslanir bjóða flestar upp á heimsendingu en auk þess er hægt að fá vörur afhentar í póstbox Kringlunnar sem eru opin til kl.23 öll kvöld. Þannig geta viðskiptavinir nýtt sér öll þau sömu tilboð sem eru í boði í verslunum með því að versla á netinu og fá vörurnar heimsendar.
Með róttækum aðgerðum sem gripið hefur verið til í sóttvörnum telur Kringlan sig vera öruggan stað að heimsækja en hvetur jafnframt alla viðskiptavini til að virða reglur um sóttvarnir s.s. fjarlægðarmörk, grímuskyldu auk þess að sinna persónulegum sóttvörnum.
Mestu skiptir að við stöndum saman – í 2 metra fjarlægð.“