Musk var meira að segja aðeins ríkari en Gates í smá stund á mánudaginn þegar hlutabréfaverð í Tesla, sem hann stofnaði og stýrir, náði nýjum hæðum en það lækkaði síðan aðeins aftur og eru þeir því taldir jafn ríkir. Musk á um 20% hlut í Tesla.
Verð hlutabréfa í Tesla hefur hækkað um rúmlega 520% á árinu en sú hækkun hefur bætt um 100 milljörðum dollara við auð Musk.
Líklegt má telja að Gates væri enn auðugri ef hann væri ekki svo iðinn við að sinna mannúðarmálum. Hann og eiginkona hans, Melinda Gates, hafa heitið að gefa stærstan hluta auðæfa sinna til góðgerðarmála.
Jeff Bezos, stofnandi Amazon netverslunarinnar, er auðugasti maður heims í dag en eignir hans eru metnar á 182 milljarða dollara.